Cabaye: Ég var ekki velkominn hjá PSG Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. ágúst 2015 10:51 Cabaye náði ekki að vinna sér fast sæti í liði PSG. vísir/getty
Yohan Cabaye, miðjumaður Crystal Palace, segir að nokkrir leikmenn Paris Saint-Germain hafi ekki viljað fá hann til félagsins á sínum tíma. Cabaye gekk til liðs við PSG frá Newcastle United í janúar 2014 en náði aldrei að festa sig í sessi hjá frönsku meisturunum. Hann ákvað því að söðla um í sumar og ganga til liðs við Crystal Palace þar sem hann hitti fyrir knattspyrnustjórann Alan Pardew en Frakkinn lék undir hans stjórn hjá Newcastle. „Ég veit fyrir víst að það voru ákveðnir leikmenn sem vildu ekki að ég kæmi til liðsins,“ sagði Cabaye um vistaskiptin til PSG. „Í hvert sinn sem ég missti boltann eða gaf vitlausa sendingu var öskrað á mig og ég fékk illt augnaráð.“ Zlatan Ibrahimovic, aðalstjarna PSG, sagðist t.a.m. aldrei hafa séð Cabaye spila þegar Frakkinn var keyptur og samkvæmt frönsku fjölmiðlum efaðist fyrirliði PSG, Thiago Silva, um að Cabaye væri nógu góður til að spila með frönsku meisturunum. „Hlutirnir gengu ekki upp í París en ég ber ekki kala til neins,“ sagði Cabaye sem sér ekki eftir því að hafa farið til Palace. „Enginn af stóru klúbbunum sýndi áhuga og þetta var ekki einföld ákvörðun, langt því frá. En ég er að vinna aftur með gamla stjóranum svo ég vissi að ég var ekki á leið inn í óvissuna. Mér líður mjög vel.“ Cabaye hefur skorað eitt mark í þremur leikjum með Palace það sem af er þessu tímabili.
Enski boltinn Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira