Innlent

Þrír handteknir í íbúð í Kópavogi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aðilarnir voru handteknir í íbúð í Kópavogi.
Aðilarnir voru handteknir í íbúð í Kópavogi. vísir/vilhelm
Lögreglan hafði í nógu að snúast á höfuðborgarsvæðinu í dag en óskað var eftir aðstoð frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu rétt eftir hádegi í dag en þrír gestir voru þar óvelkomnir í íbúð í Kópavogi. Þeir voru allir handteknir.

Ekki gátu þeir gert grein fyrir veru sinni í íbúðinni en húsráðandinn var ekki á staðnum. Íbúðinni var lokað og hinir handteknu færðir á lögreglustöð þar sem skýrslur verða teknir af þeim.

Rétt fyrir hádegi í dag var síðan tilkynnt um innbrot í Mosfellsbæ og í framhaldi af því voru tveir handteknir grunaðir um innbrotið.  Þeir voru færðir í fangageymslu og vistaðir þar uns unnt er að taka af þeim skýrslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×