United-slúðrið: Gareth Bale inn en þeir Van Persie og Di Maria út Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2015 07:58 Gareth Bale. Vísir/Getty
Ensku blöðin einbeita sér nær öll að Manchester United í morgun og nær öll eru á því að Gareth Bale sé á leiðinni á Old Trafford í sumar. Það gengur lítið upp hjá Gareth Bale hjá Real Madrid þessa daganna og þessi dýrasti knattspyrnumaður heims gæti því verið á leiðinni aftur í enska boltann. Bale fær mesta gagnrýnina nú þegar Real Madrid er úr leik í Meistaradeildinni og nánast búið að missa af spænska titlinum líka. Liðið er síðan fyrir nokkru dottið út úr bikarnum og það stefnir allt í titlalausan vetur hjá Carlo Ancelotti og lærisveinum hans.Daily Mirror segir frá því að til þess að búa til pláss fyrir Gareth Bale þá ætli Manchester United að láta þá Robin van Persie og Angel Di Maria fara og spara með því 500 þúsund pund í launakostnað á viku sem eru um 103 milljónir íslenskra króna. Van Persie og Di Maria hafa ekki staðið undir því að vera frá 250 þúsund pund í laun á viku og Angel Di Maria hefur ekki verið sá súpermaður sem United vonaðist eftir þegar félagið keypti hann á 59,7 milljónir punda síðasta sumar. Manchester United missti af því að næla í Gareth Bale þegar Real Madrid keypti hann á 85 milljónir punda frá Tottenham sumarið 2013. Daily Star telur að kaupverðið verði í kringum 80 milljónir punda. Fleiri blöð velta sér upp úr framtíðinni í leikmannamálum Manchester United. Daily Mail slær því upp að Louis Van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United ætli að bjóða 45 milljónir punda í Harry Kane, framherja Tottenham.
Enski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Fleiri fréttir Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Sjá meira