Skipstjóri Costa Concordia sekur um manndráp Atli Ísleifsson skrifar 11. febrúar 2015 19:16 Francesco Schettino stýrði skipinu Costa Concordia þegar skipið sökk í janúar 2012. Vísir/AFP
Ítalskur dómstóll hefur fundið ítalska skipstjórann Francesco Schettino sekan um manndráp. Dómurinn dæmdi Schettino í sextán ára fangelsi. Schettino stýrði skipinu Costa Concordia þegar það rakst á sker og sökk í Miðjarðarhafi árið 2012 með þeim afleiðinum að 32 manns fórust. Réttarhöldunum lauk í dag en í ræðu sinni fyrir dómnum sagði Schettino að fjölmiðlar hefðu farið illa með sig síðustu þrjú ár. Sagði hann að allri ábyrgðinni hefði verið varpað á sig, án tillits til sannleikans né minningar þeirra sem létust. Honum tókst ekki að ljúka máli sínu þar sem hann brast í grát og settist aftur niður. Schettino og verjendur hans sögðu að hann hafi beðið með að láta farþega yfirgefa skipið því hann vildi ekki að farþegarnir myndu hoppa í sjóinn. Þá hafi hann reiknað með því að skipið myndi færast nær eynni, vegna vinds og strauma. Schettino sagði að skerið sem skipið lenti á hafi ekki verið á kortum. Þá var skipinu siglt nær eyjunni en til stóð og Schettino segir að eigandi skipsins hafi sagt honum að gera það. Skipstjórinn segir þar að auki að hann hafi ekki yfirgefið skipið viljandi heldur hafi hann fallið útbyrðis. Hann var mikið gagnrýndur fyrir að hafa yfirgefið skipið á meðan fjöldi farþega var enn í bráðri lífshættu og því ekki farið síðastur frá borði.
Tengdar fréttir Skipstjóri Costa Concordia brast í grát Francesco Schettino sagði að skipafélagið ætti sök á slysinu sem 32 létust í og sagði fjölmiðla hafa verið ósanngjarna gagnvart sér. 11. febrúar 2015 13:16 Skipstjóri Costa Concordia bíður örlaga sinna Réttarhöldum yfir skipstjóra skipsins Costa Concordia, sem strandaði undan ítölsku eynni Giglio í ársbyrjun 2012, fer senn að ljúka. 10. febrúar 2015 17:41 Mest lesið Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Erlent Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Veður Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Innlent Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Sjá meira
Skipstjóri Costa Concordia brast í grát Francesco Schettino sagði að skipafélagið ætti sök á slysinu sem 32 létust í og sagði fjölmiðla hafa verið ósanngjarna gagnvart sér. 11. febrúar 2015 13:16
Skipstjóri Costa Concordia bíður örlaga sinna Réttarhöldum yfir skipstjóra skipsins Costa Concordia, sem strandaði undan ítölsku eynni Giglio í ársbyrjun 2012, fer senn að ljúka. 10. febrúar 2015 17:41