De Bruyne: Kompany sannfærði mig um að koma til Man City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. september 2015 08:00 De Bruyne var úthlutað treyju númer 17 hjá Man City. mynd/facebook-síða man city
Kevin De Bruyne, nýjasti liðsmaður Manchester City, segir að Vincent Kompany hafi sannfært sig um að ganga til liðs við félagið.City gekk frá kaupunum á De Bruyne í gær en Belginn kostaði heilar 54 milljónir punda. Hann er dýrasti leikmaður í sögu City. De Bruyne átti frábært tímabil með Wolfsburg í fyrra, varð bikarmeistari og lagði upp 20 mörk í þýsku úrvalsdeildinni, flest allra leikmanna. „Ég sé tækifæri til að vinna titla með svona hæfileikaríkum hópi leikmanna,“ sagði De Bruyne. „Ég átti frábæran tíma í Þýskalandi og við unnum nokkra titla. Vonandi get ég bætt mig sem leikmann og gert góða hluti fyrir City.“ Kompany, fyrirliði City, átti að sögn De Bruyne sinn þátt í að fá hann til Manchester-liðsins. „Hann hringdi nokkrum sinnum í mig og við töluðum saman,“ sagði De Bruyne en þeir Kompany þekkjast vel úr belgíska landsliðinu. „Hann sagði að ég væri í góðum höndum hjá City og að það yrði vel hugsað um mig. „Það er alltaf fínt að hafa einhverja sem maður þekkir. Við Kompany þekkjumst mjög vel. Hann getur hjálpað mér að aðlagast.“ De Bruyne þekkir aðeins til ensku úrvalsdeildarinnar en hann lék þrjá leiki með Chelsea haustið 2013. De Bruyne gæti leikið sinn fyrsta leik með City þegar liðið sækir Crystal Palace heim eftir tvær vikur.
Enski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Handbolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira