Erlent

Berjast gegn brauðfóðrun anda

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Bresk samtök hvetja fólk til að gefa öndum frosnar baunir frekar en brauð.
Bresk samtök hvetja fólk til að gefa öndum frosnar baunir frekar en brauð. Vísir/Valli
Flestir hafa farið niður að tjörn til að gefa öndunum brauð og bakarí í miðbænum selja jafnvel brauð sérstaklega í þeim tilgangi. Það eru hins vegar mistök, ef marka má herferð breskra samtaka sem berjast fyrir breyttum matargjöfum. Breska blaðið Telegraph fjallar um málið.

Samtökin Canal & River Trust reyna nú að fá fólk til að gefa öndum og fuglum frekar frosnar baunir, kál og vínber. Samtökin vilja meina að brauð sé eins og skyndibitafæða fyrir fólk og að meindýr á borð við rottur éti stóran hluta þess brauðs sem ætlað er öndum.

Til stendur að setja upp auglýsingar í lestum og við almenningssalerni þar sem fólki er kynnt hvaða matur hentar öndum og öðru fiðurfé. Má þar auk bauna og vínberja nefna hafra, bygg, hrísgrjón og grænmetsbita. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×