Villa, Palace, Stoke og WBA í vandræðum í deildabikarnum en sluppu öll Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2015 21:55 Leikmenn Stoke fagna sigri í vítakeppninni í kvöld. Vísir/Getty
Ensku úrvalsdeildarliðin Aston Villa, Crystal Palace, Stoke City og West Bromwich Albion lentu í vandræðum í annarri umferð enska deildabikarsins í kvöld. Öll komust þau áfram þar af fóru Stoke og West Bromwich Albion alla leið í vitakeppni. Tvö Íslendingalið komust áfram, Swansea City og Charlton, en landsliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson voru báðir hvíldir í kvöld.Stoke City vann 8-7 sigur á Luton Town í vítakeppni en úrslitin réðust ekki fyrr en í áttundu umferð þegar Scott Griffiths, leikmaður Luton Town, skaut í slá og Geoff Cameron skoraði úr næstu spyrnu Stoke. West Bromwich Albion vann 5-3 sigur á Port Vale í vítakeppni og slapp því með skrekkinn eins og Stoke.Nathan Dyer, Matt Grimes og Marvin Emnes skoruðu fyrir Swansea í 3-0 sigri á York en Gylfi Þór Sigurðsson var hvíldur í leiknum.Jermain Defoe skoraði þrennu og Jack Rodwell var með tvö mörk þegar Sunderland vann 6-3 sigur á Exeter. Duncan Watmore skoraði sjötta markið en staðan var 3-3 í hálfleik.Crystal Palace þurfti framlengingu til að vinna Shrewsbury en Palace-liðið skoraði þrjú mörk í framlengingunni. Dwight Gayle jafnaði úr víti og þeir Glenn Murray, Lee Chung-yong og Wilfried Zaha Zaha skoruðu allir í framlengingunni.Scott Sinclair skoraði þrennu fyrir Aston Villa sem vann 5-3 sigur á Notts County í framlengingu. Adama Traore og Joe Bennett skoruðu hin mörk Villa-liðsins.Táningurinn Joe Dodoo skoraði þrennu fyrir Leicester í 4-1 útisigri á Bury en hinn ungi Dodoo lagði líka upp fjórða markið fyrir Andrej Kramaric.Bournemouth gerði ellefu breytingar frá sigrinum á West Ham en vann engu að síðustu 4-0 sigur á Hartlepool. Junior Stanislas skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Yann Kermorgant. Dan Gosling skoraði fjórða markið.Florian Thauvin og Siem de Jong skoruðu á fyrstu átta mínútunum í 4-1 sigri Newcastle á Northampton. Florian Thauvin var í fyrsta sinn í byrjunarliði Newcastle og lagði upp mörk fyrir bæði Daryl Janmaat og Mike Williamson í seinni hálfleik.Jóhann Berg Guðmundsson var hvíldur þegar Charlton vann 4-1 sigur á Peterborough á útivelli.Úrslit í enska deildabikarnum í kvöld: Aston Villa - Notts County 5-3 (Framlenging) Birmingham - Gillingham 2-0 Burton - Middlesbrough 1-2 (Framlenging) Bury - Leicester 1-4 Crystal Palace - Shrewsbury 4-1 (Framlenging) Doncaster - Ipswich 1-4 (Framlenging) Fulham - Sheff Utd 3-0 Hartlepool - Bournemouth 0-4 Hull - Rochdale 1-0 Luton - Stoke 1-1 (Stoke vann 8-7 í vítakeppni) MK Dons - Cardiff 2-1 (Framlenging) Newcastle - Northampton 4-1 Peterborough - Charlton 1-4 Portsmouth - Reading 1-2 Preston - Watford 1-0 QPR - Carlisle 1-2 Rotherham - Norwich 1-2 Sheff Wed - Oxford Utd 1-0 Sunderland - Exeter 6-3 Swansea - York 3-0 Walsall - Brighton 2-1 Wolves - Barnet 2-1 West Brom - Port Vale 0-0 (WBA vann 5-3 í vítakeppni)
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Fótbolti Tvær brauðsneiðar reyndust uppskriftin að fimm mörkum Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira