Erlent

Feneyingar kusu um sjálfstæði frá Ítalíu

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Feneyjahérað íhugar aðskilnað frá Ítalíu.
Feneyjahérað íhugar aðskilnað frá Ítalíu. Mynd/AFP
Feneyingar kusu um sjálfstæði frá Ítalíu í netkönnun í vikunni sem leið. 89% kjósenda voru hlynntir aðskilnaði. AFP greinir frá.

Tvær milljónir Ítala búsettir í Feneyjum og nágrenni tóku þátt í atkvæðagreiðslu á netinu í síðustu viku. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda var hlynntur því að Feneyjar yrðu sjálfstætt ríki.

Atkvæðagreiðslan var ekki lögbindandi, en sjálfstæðissinnaðir stjórnmálaflokkar á svæðinu stóðu fyrir henni. Áætla flokkarnir að nýta sér hana til stuðnings á héraðsþingi þar sem þeir leggja fram frumvarp að bindandi atkvæðagreiðslu.

Áhangendur segja nýfeneyskt lýðveldi geta dregið innblástur frá hinu forna lýðveldi, sem hafði blómstrandi hagkerfi og ríkulegt viðskiptavald frá 7. öld og þar til Napóleon tók við völdum árið 1797.

Luca Zaia, forseti Feneyjahéraðs, sagði frumvarpið eiga langt í land, en það þarfnast samþykkis umdæmisráðs áður en það fer til Rómarþings.

Andstæðingar segja aðskilnaðarstefnuna brjóta í bága við stjórnarskrá Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×