Sameinast um áætlun gegn ebólufaraldri Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2014 10:43 Ebólaveiran hefur þegar dregið 467 manns til dauða í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne síðustu vikur og mánuði. Vísir/AFP
Heilbrigðisráðherrar ellefu ríkja í vesturhluta Afríku hafa komið sér saman um sameiginlega áætlun gegn ebólufaraldrinum sem nú geisar í heimshlutanum. Ráðherrarnir komu saman á neyðarfundi í Gana í gær þar sem þeir hétu því að vinna í sameiningu gegn útbreiðslu veirunnar. Á vef BBC segir að útbreiðsla hafi aldrei verið meiri þar sem vitað er um 759 tilfelli í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne og hafa 467 þeirra leitt smitaða til dauða. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) boðaði til fundarins, en stofnunin mun næstu daga opna samhæfingarmiðstöð í Gíneu til að vinna gegn útbreiðslunni. Keiji Fukuda, aðstoðarframkvæmdastjóri hjá WHO, segir það ómögulegt að svara hvernig útbreiðslan mun nákvæmlega þróast. Hann vonast til að ekki líði meira en nokkrir mánuðir áður en tök nást á útbreiðslunni. „Ég vonast virkilega til að sjá viðsnúning á næstu vikum og að skráðum tilfellum fækki.“ Sýking af völdum ebólu hefur enn sem komið er verið bundin við Afríku. Sjúkdómurinn skaut nokkrum sinnum upp kollinum á áttunda áratug síðustu aldar en lét svo ekki á sér kræla í rúman áratug. Á Vísindavefnum segir að veiran geti skemmt mikilvæg líffæri, einkum lifur og nýru, sem leiði til blæðinga frá líkamsopum og oft skemmdum á innri vefjum. Blæðingarnar geta svo leitt til að sjúkdómurinn þróist yfir í lost, öndunarstopp og síðan dauða.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Sjá meira