"Megum ekki láta börn drukkna“ Atli Ísleifsson skrifar 4. júlí 2014 13:51 Á ári hverju halda fleiri þúsundir manna til Evrópu frá norðurströnd Afríku á ofhlöðnum bátum í leit að betra lífi. Vísir/AFP
Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, segir það ekki einungis vera á ábyrgð Ítalíu og annarra Miðjarðarhafslanda þegar menn, konur og börn frá öðrum heimshlutum drukkna í tilraun sinni að ná til Evrópu. Ítalía tók við sex mánaða formennsku í Ráðherraráði ESB á þriðjudaginn og hefur nýtt fyrstu dagana í að hvetja til aukins samstarfs aðildarríkjanna. Renzi segir enga siðmenntaða þjóð geta setið hjá þegar börn eru sett um borð í hrörlega báta og send á haf út. „Við verðum að bjarga þessum börnum. Við getum ekki leyft bátum fullum af börnum sökkva einungis vegna þess að við vitum ekki hver ber ábyrgð á að bjarga bátnunum. Evrópa verður að leggja meira til,“ sagði Renzi eftir fund sinn með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnarinnar, í Róm í gær. Ítölsk stjórnvöld vilja að Frontex, landamæraeftirlitisstofnun ESB, taki að sér aukna ábyrgð í þessum málum.Á vef Politiken segir að Ítalía og fleiri Miðjarðarhafslönd hafi lengi talað fyrir aukinni þátttöku annarra ESB-ríkja og betri úrvinnslu og samvinnu þegar kemur að stöðugum straumi þess flóttafólks sem yfirgefur strendur Norður-Afríku áleiðis til Evrópu í leit að betra lífi. Bátarnir sem flytur fólkið eru nánast undantekningarlaust ofhlaðnir af fólki og drukknar mikill fjöldi fólks í Miðjarðarhafi á ári hverju vegna þessa.Matteo Renzi hefur áhyggjur af þróuninni.Vísir/AFPStyðja við líbísk stjórnvöld Ítölsk yfirvöld tilkynntu fyrr í vikunni að metfjöldi flóttafólks hafi komið inn í landið það sem af er ári. Frá áramótum hafa 64 þúsund manns komið á bátum frá Norður-Afríku. Fyrr í dag kom ítalski flotinn 834 flóttamönnum frá Sýrlandi, Egyptalandi, Erítreu, Palestínu og Súdan til hafnar í Reggio Calabria í Suður-Ítalíu eftir að þeim var bjargað undir ströndum Möltu. Renzi segir að 96 prósent allra flóttamanna sem koma til Ítalíu koma í bátum sem leggja úr höfn í Líbíu. Leggur hann till að ESB leggi aukinn þunga í að styðja við bakið á líbískum stjórnvöldum til að stemma stigu við þessari ógnvænlegu þróun.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira