Krabbameinstilfellum fjölgar um 70 prósent á næstu árum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 3. febrúar 2014 21:36 Samkvæmt nýjustu skýrslu um krabbamein í heiminum kemur fram að ósennilegt sé að hægt verði að vinna bug á sjúkdómnum og frekar eigi að einblína á það hvernig hægt sé að koma í veg fyrir ný tilfelli. MYND/GETTY
Talið er að krabbameinstilfellum í heiminum muni fjölga um 70 prósent á næstu tveimur áratugum. Árið 2012 greindust 14 milljónir manna með krabbamein en Alþjóðahelbrigðismálastofnunin (WHO) telur að um 25 milljónir manna muni greinast á hverju ári eftir einhvern tíma. Guardian segir frá. Tilfellum hefur farið fjölgandi síðustu ár og sem dæmi greindust 12,7 milljónir manna með krabbamein árið 2008. Samkvæmt nýjustu skýrslu um krabbamein í heiminum kemur fram að ósennilegt sé að hægt verði að vinna bug á sjúkdómnum og frekar eigi að einblína á það hvernig hægt sé að koma í veg fyrir ný tilfelli. Ríkustu þjóðir heims eigi nú þegar erfitt með kostnaðinn sem fylgir krabbameinsmeðferðum og fátækari þjóðir séu afar illa í stakk búnar að takast á við slíkan kostnað og hvað þá ef tilfellum fjölgi. Vandamálið með fjölgun krabbameinstilfella mun leggjast þyngst á fátækustu þjóðirnar. Þær þjóðir eru einnig í meiri hættu á tveimur gerðum krabbameina. Þeim sem verða til vegna sýkinga en meðal slíkra meina má nefna krabbamein í leghálsi og krabbameinum sem fólk fær vegna lífstíls síns en dæmi um slík krabbamein eru þau sem myndast vegna tóbaksnotkunar og áfengisneyslu. Leghálskrabbamein er enn mikið vandamál í fátækum löndum þar sem ekki er skimað eftir því. Lungnakrabbamein er algengast hjá körlum og veldur það flestum dauðsföllum þeirra karla sem greinast með krabbamein. Brjóstakrabbamein er algengast hjá þeim konum sem greinast með krabbamein en næst á eftir kemur lungnakrabbamein. Önnur algengustu krabbameinin eru í maga, ristli og blöðruhálskirtli.
Mest lesið Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira