Stærsti fíll Keníu drepinn af veiðiþjófum Samúel Karl Ólason skrifar 14. júní 2014 11:56 Vísir/AFP
Satoa, stærsti fíll Kenía og einn af þeim stærstu í Afríku, var nýverið drepinn af veiðiþjófum. Hann hélt til í Tsavo þjóðgarðinum í norðurhluta landsins og er sagður vera einn af síðustu fílunum sem eru með skögultennur sem ná niður að jörðu. Fílum Afríku stafar mikil ógn af veiðiþjófum en áætlað er að um 20 þúsund fílar hafi verið drepnir í fyrra. Það er þó fækkun frá síðustu tveimur árum þar á undan. BBC segir frá því að fílar sem verða fyrir barðinu á veiðiþjófum séu töluvert fleiri en fílar sem fæðast. Skýrslu Cites um fíladráp og sölu á fílabeinum má sjá hér. Cites eru samtök sem halda utan um reglugerðir um verslun með yfir 35 þúsund plöntur og dýr í útrýmingarhættu. Veiðiþjófar í einum elsta þjóðgarði Afríku, Garamba-garðinum í Kongó, hafa drepið sextíu og átta fíla á síðustu tveimur mánuðum. Jean-Marc Froment, þjóðgarðsvörður, segir í samtali við fréttavefinn NewsDaily að stríðsástand ríki í þessum einstaka, fimm þúsund ferkílómetra þjóðgarði. Talið að veiðiþjófarnir séu Kongómenn, líklega hermenn, í slagtogi við ódæðismenn frá Suður-Súdan. Froment fullyrðir að veiðiþjófarnir skjóti fílana úr þyrlum áður en þeir saga skögultennurnar af þeim. Í sumum tilfellum er heilinn fjarlægður um leið ásamt kynfærum dýranna. Svo virðist sem að veiðiþjófarnir geri ekki greinarmun á fullvaxta fílum og afkvæmum þeirra. Nýleg rannsókn á fílastofninum í Garamba-garðinum leiddi í ljós að stofninn hefur minnkað um tæplega tuttugu þúsund dýr á síðustu tveimur áratugum. Í dag er um tvö þúsund fílar í garðinum.Lagt er hald á gífurlegt magn fílabeina á ári hverju.Vísir/AFPÁrið í fyrra var í fyrsta sinn sem lagt er hald á meira magn af fílabeinum í Afríku, en í Asíu. Alþjóðleg glæpasamtök virðast koma að því að drepa fíla fyrir bein og smygla þeim um heim allan. Þar munar miklu um betri löggæslu í löndum eins og Kenía, Tansaníu og Úganda og lækkandi eftirspurnar á lykilmörkuðum í til dæmis Kína. Þar í landi voru fílabein sem yfirvöld höfðu lagt hald á, eytt opinberlega í fyrsta sinn. Þá hefur eftirspurn aukist eftir fílabeinum sem eru flutt út löglega frá Rússlandi. Það virðist gefa í skyn að meðvitund um slæmt ástand fílastofna sé að aukast.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira