„Ástarhreiður“ áróðursmálaráðherrans til sölu Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. júní 2014 23:44 VISIR/GETTY
Sjötíu herbergja „ástarhreiður“, Joseph Göbbels, áróðursmálaráðherra Þriðja ríkisins, er falt fyrir rétta upphæð og leita yfirvöld í Berlín þessa dagana að álitlegum kaupendum fyrir eignina. Húsið hefur í raun verið til sölu undanfarna tvo áratugi en sökum eðlis eignarinnar þurfa væntanlegir fjárfestar að uppfylla hin fjölmörgu skilyrði sem engum hefur enn tekist að fylla. The Telegraph greinir frá þessu.Húsið er einnig talið það eina sem enn er talið standa í nær upprunalegri mynd af þeim fjölmörgu húsum sem áður voru í eigu nasista þegar veldi þeirra reis hæst á fjórða áratug síðustu aldar. Í vistarverum hússins, sem er í um 38 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Berlín, er meðal annars að finna kvikmyndasal, vel útbúið veislurými og víðáttumikla verönd. Göbbels nýtti húsið til hins ítrasta, þá kannski hvað helst í hina margvíslegustu lostaleiki með fjölda kvenna, þar á meðal leikkonu af gyðingaættum. Einnig er talið að hann hafi ritað þar mörg fúkyrðin um gyðinga sem hann lét flakka í frægum ræðum sínum sem skóku heimsbyggðina. Göbbels endaði ævi sína þó ekki þar heldur fyrirfór hann sér, ásamt konu sinni og sex börnum, fyrir framan neðanjarðarbyrgi Hitlers undir loks seinna stríðs. Húsið hefur þó ekki staðið ónýtt í þá tæplega sjö áratugi sem liðnir eru frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Eftir að stríðinu lauk var það meðal annars notað sem kommúnískur lýðháskóli en er nú bagalegur minnisvarði þýskra stjórnavalda um dökka fortíð. Ekki bætir úr skák að viðhald á húsinu er rándýrt.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira