Eldflaugum skotið á bílalest með flóttafólki Atli Ísleifsson skrifar 18. ágúst 2014 11:06
Eldflaugum var skotið á bílalest þar sem verið var að flytja fjölda flóttafólks frá átakasvæðum í kringum borgina Luhansk í austurhluta Úkraínu í morgun. Að sögn talsmanns Úkraínuhers eru margir látnir.Í frétt BBC segir að enn eigi eftir að fá nánari upplýsingar um árásina sem Úkraínuher segir að aðskilnaðarsinna á svæðinu bera ábyrgð á. Andriy Lysenko, talsmaður Úkraínuhers, segir uppreisnarmenn, sem fá vopn sín frá Rússlandi, hafi skotið á bílalestina og að margir hafi látist, konur og börn þeirra á meðal. Talsmaður aðskilnaðarsinna hafnar því hins vegar að þeir beri ábyrgð á árásinni. „Úkraínumennirnir hafa sjálfir skotið látlaust á veginn. Nú virðist sem þeir hafi drepið fleiri borgara, líkt og þeir hafi gert í marga mánuði.“ Mikil átök hafa staðið í kringum Luhansk að undanförnu og þjást íbúar borgarinnar nú af miklum skorti á vatni, mat og rafmagni. Hersveitir Úkraínuhers eru nú staðsettar í útjaðri borgarinnar sem enn er á valdi aðskilnaðarsinna. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði nýverið að samkomulag hefði náðst um flutning hjálpargagna frá Rússlandi og til austurhluta Úkraínu eftir viðræður utanríkisráðherra Rússlands, Úkraínu, Frakklands og Þýskalands í Berlín. Ekki hafði þó náðst samkomulag um vopnahlé.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Sjá meira