Erlent

Enginn verði ríkisfangslaus

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Antonio Guterres, yfirmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, kynnti herferðina í gær.
Antonio Guterres, yfirmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, kynnti herferðina í gær. fréttablaðið/AP
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kynnti í gær metnaðarfulla herferð gegn ríkisfangsleysi. Stefnt verði að því að innan áratugar verði enginn maður ríkisfangslaus.

Milljónir manna búa nú við það að vera hvergi ríkisborgarar, og eru þá hvorki með fæðingarvottorð né önnur persónuskilríki.

Ástandið hefur versnað mjög undanfarin misseri, einkum vegna átakanna í Sýrlandi. Nýfædd börn kvenna, sem flúið hafa átökin þar, lenda mörg í þessari stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×