Frakklandsforseti fordæmir ofbeldið Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. júní 2014 00:01 Fátæklegar búðir rómafólks hafa lengi verið þyrnir í augum margra betur staddra íbúa landsins. Vísir/AFP
Múgur manns réðst á sextán ára pilt og barði til óbóta. Hann liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi og er haldið sofandi, þar sem kvalir hans voru orðnar óbærilegar. Pilturinn, sem sagður er heita Darius, er af rómafólki. Hann hafði verið sakaður um þjófnað. Rúmlega tíu manns réðust inn í búðir rómafólks skammt norður af París á föstudagskvöld og námu piltinn burt. Um 200 manns flúðu úr búðunum sama kvöld. Pilturinn fannst síðan stórslasaður í innkaupavagni við vegarkant. Francois Hollande Frakklandsforseti sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann fordæmdi árásina og sagði að allt kapp verði að leggja á að finna ofbeldismennina. Árásum á rómafólk hefur fjölgað mikið í Frakklandi undanfarið. Það býr margt í fátæklegum búðum sem hróflað hefur verið upp við þjóðvegi landsins. Það er iðulega sakað um þjófnað og verður fyrir margvíslegum fordómum. Staða rómafólks hefur verið mikið til umræðu í Frakklandi síðustu misserin, eða allt frá því að Nicolas Sarkozy, þáverandi forseti, tók sér fyrir hendur að láta rífa búðir þess og sagði þær gróðrarstíu glæpa.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira