Erlent

Rottur finna fyrir eftirsjá

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna, heldur á dauðri rottu.
Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna, heldur á dauðri rottu. Vísir/GVA
Rottur finna fyrir eftirsjá eins og mannfólkið. Vísindamenn við Háskólann í Minneapolis komust að þessum niðurstöðum en þeir settu rottur í völundarhús sem geymdi ýmsar tegundir af mat.

Þegar rottan kom að matnum gat hún valið um að bíða litla stund eftir því að fá að borða eða leita annars matar, sem varð til þess að rottan þurfti að bíða lengur.

Þegar óþolinmæði rottu varð til þess að hún þurfti að bíða lengur var greinilegt á heilabylgjum og athæfi rottunnar að hún upplifði eftirsjá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×