Borgarslagur um Meistaradeildartitilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2014 06:00 Ronaldo og Bale verða í lykilhlutverki í kvöld. vísir/getty
Atletico Madrid og Real Madrid spila í kvöld sögulegan úrslitaleik í Meistaradeildinni þegar nágrannarnir mætast á Leikvangi ljóssins í Lissabon. Þetta er fyrsti borgarslagurinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18.45 að íslenskum tíma og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Atletico Madrid vann spænsku deildina um síðustu helgi í fyrsta sinn frá 1996 en getur þarna unnið Meistaradeildina í fyrsta sinn. Strákarnir hans Diegos Simeone tóku deildina fyrir framan nefið á Barcelona og geta nú gert það sama við hina risana á Spáni. Það yrði sárt fyrir stóra bróður í Madríd. Nágrannarnir í Real eiga nefnilega möguleika á því að verða fyrsta félagið til að vinna Evrópukeppni meistaraliða í tíunda sinn. „Eftir að við unnum þann níunda í Glasgow voru menn farnir að spyrja okkur um þann tíunda strax daginn eftir,“ sagði Iker Casillas, fyrirliði Real Madrid í dag og sá eini sem spilaði þennan úrslitaleik fyrir tólf árum. Undanfarin ár hefur öllu verið tjaldað til á Santiago Bernebau til að setja saman Evrópumeistaralið. Stærstu stjörnur liðanna tveggja verða vonandi leikfærar í kvöld. Cristiano Ronaldo er klár eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum og Atletico-menn beita öllum aðferðum til þess að Diego Costa verði með í kvöld. Costa þarf samt á litlu kraftaverki að halda. „Það verður algjör draumur fyrir mig að spila úrslitaleik í Portúgal,“ skrifaði Cristiano Ronaldo á Twitter-síðu sína í gær en hann er þegar búinn að setja markamet með því að skora sextán mörk í Meistaradeildinni á þessari leiktíð. Ronaldo er búinn að skora 51 Meistaradeildarmark fyrir Real en fær nú loksins að spila úrslitaleik með liðinu og það á „heimavelli“. Hjörtur Hjartarson hitar upp fyrir úrslitaleikinn á Stöð 2 Sport (hefst klukkan 17.45) þar sem hann fær til sína góða gesti og Guðmundur Benediktsson mun svo lýsa leiknum af sinni alkunnu snilld.
Fótbolti Mest lesið Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Sport Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Fótbolti Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Fótbolti Heimsmeistarinn í beinni á Vísi Sport Fleiri fréttir Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uefa gefur ekki rautt fyrir að hylja munninn Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR Vildi spila undir De Zerbi Náði að halda áfram eftir að fá drep í fótinn Spánverjar sýndu sitt rétta andlit í 32-liða úrslitum Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Mikael snýr aftur til AGF vegna fjölskyldunnar HM-þjálfari kvaddi með maraþonblaðamannafundi Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Ekki hrifinn af því að spila í bakverði Forseti Grænhöfðaeyja: „Við getum unnið Argentínu 1-0“ Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Stuðningsmennirnir skapað mikinn áhuga á víkingaöldinni Forveri Freys tekur við af honum Hlín er nýja nían hjá Malmö í Svíþjóð Hvað er að gerast hjá Manchester United? Maður dagsins á HM: Harry Kane hoppaði upp fyrir Pelé Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum „Leyfið börnunum að vaka“ Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn