Gaddafí rændi og nauðgaði börnum Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. janúar 2014 06:00 Gaddafí ásamt einkalífvarðasveit sinni. nordicphotos/AFP
Múammar Gaddafí, einræðisherra í Líbíu, stundaði það að láta menn sína ræna stúlkum á unglingsaldri, og stundum drengjum, sem hann síðan notaði til að svala fýsnum sínum í eins konar dýflissum, sérstaklega innréttuðum í þessu skyni. Frá þessu er skýrt í heimildarmynd, sem sýnd verður í breska ríkissjónvarpinu, BBC, í byrjun næstu viku. Þar er rætt við bæði fórnarlömb einræðisherrans og vitni, sem mörg vildu þó ekki láta nafn síns getið af ótta við hefndaraðgerðir af hálfu fólks, sem enn heldur tryggð við Gaddafí. Viðmælendur lýstu því að þegar Gaddafí heimsótti skóla, þá hafi hann gjarnan valið fórnarlömb sín og gefið það til kynna með því að klappa á kollinn á þeim. Lífverðir hans hafi síðan farið með viðkomandi í eina af dýflissunum, og stuttu síðar hafi Gaddafí mætt þangað til að nauðga þeim. Ein af þessum dýflissum er í Trípólí-háskóla, og þar er einnig sér útbúið herbergi með tækjabúnaði kvensjúkdómalækna. Þar hafi verið athugað hvort fórnarlömbin hafi verið smituð af kynsjúkdómum áður en einræðisherrann kom til að níðast á þeim. Sumar af stúlkunum, sem þannig var rænt, voru teknar í kvenkyns einkalífvarðarsveitir Gaddafís, og þurftu þar árum saman að þjóna fýsnum hans. Gaddafí var steypt af stóli sumarið 2011 og drepinn af uppreisnarmönnum í október sama ár.
Mest lesið Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Innlent Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Innlent Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Erlent Fleiri fréttir Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Sjá meira