Egyptar samþykkja breytta stjórnarskrá Guðsteinn Bjarnason skrifar 17. janúar 2014 06:00 Kosningunni lauk á miðvikudagskvöld og var strax hafist handa við að telja. Nordicphtoso/AFP
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra, sem mættu á kjörstað í Egyptalandi, virðist hafa samþykkt breytta stjórnarskrá. Fyrstu tölur benda til þess að kosningaþátttakan hafi ekki verið nema 38 prósent, að því er fram kemur á fréttavefnum Al Jazeera, enda höfðu íslamistar hvatt fólk til að mæta ekki á kjörstað. Þetta er þó heldur meira en þegar Mohammed Morsi, þáverandi forseti, efndi til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá fyrir rétt rúmu ári, en þá tóku tæp 33 prósent kosningabærra manna þátt og var sú stjórnarskrá samþykkt með 64 prósentum atkvæða. Kosningin hófst á þriðjudag og stóð í tvo daga. Fyrri daginn kom til átaka og létu níu manns lífið, en seinni daginn fór allt betur fram. Mikil öryggisgæsla var í landinu meðan á þessu stóð. Þetta voru fyrstu kosningarnar í Egyptalandi frá því herinn steypti Mohammed Morsi af stóli í sumar. Stefnt er að forseta- og þingkosningum síðar á árinu. Margir Egyptar virðast vonast til þess að samþykkt nýju stjórnarskrárinnar marki upphafið að endalokum á þeim áhrifum sem Bræðralag múslima hefur haft í landinu. Framkvæmd kosninganna hefur verið gagnrýnd, ekki síst kosningabaráttan sem einkenndist af nokkru offorsi stuðningsmanna stjórnarinnar. Stjórnarandstaðan fékk lítinn aðgang að fjölmiðlum, sem eru flestir á bandi stjórnarinnar. Fastlega er reiknað með því að herforinginn Abdel Fattah el Sissi, sem er varnarmálaráðherra í bráðabirgðastjórn landsins, muni bjóða sig fram til forseta. Hann hefur þó ekki tekið af skarið um það opinberlega ennþá.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira