Fjölmennt við útför einræðisherra Bjarki Ármannsson skrifar 12. október 2014 09:14 Jean-Clauda Duvalier komst til valda árið 1971, þá aðeins nítján ára gamall. Vísir/AP
Hundruð manna sóttu jarðarför fyrrum einræðisherrans Jean-Claude Duvalier í Port-au-Prince, höfuðborg Haíti, í gær. Vildu gestir votta honum virðingu sína, þrátt fyrir að fimmtán ára stjórnartíð hans hafi einkennst af spillingu og mannréttindabrotum. Margir höfðu velt því fyrir sér hvort Duvalier, sem oft gekk undir viðurnefninu Baby Doc, fengi jarðarför í boði ríkisins eftir að hann lést úr hjartaáfalli í síðustu viku. Svo fór að fjölskylda og vinir skipulögðu athöfnina sjálf. Í viðtali við fréttaveituna AP segir Alex Dupuy, háskólaprófessor frá Haítí, að það sé smávægilegur sigur fyrir andstæðinga stjórnar Duvalier að ríkið sæi ekki um að jarðsetja hann, þó fulltrúar forseta og forsætisráðherra landsins hafi mætt í jarðarförina. Baby Doc komst til valda árið 1971, þá nítján ára gamall, við andlát föður hans, Papa Doc, en sá hafði stjórnað Haítí frá árinu 1957. Þeir feðgar stjórnuðu Haítí með harðri hendi og eru sakaðir um gríðarlega spillingu, ofríki og brot á mannréttindum. Talið er að þeir hafi haft miskunnarlausar hersveitir á sínum snærum sem taldar eru hafa myrt þúsundir manna. Engin mótmæli áttu sér stað við jarðarför Duvalier en fórnarlömb stjórnartíðar hans skipulögðu samkomu við höfuðstöðvar fyrrum flokks hans.
Tengdar fréttir Ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Jean-Claude Duvalier, eða Baby Doc eins og hann var kallaður, fyrrverandi einræðisherra á Haiti sem lést í gær eftir hjartaslag átti yfir höfði sér ákæru fyrir glæpi gegn mannkyninu. 5. október 2014 11:55 Baby Doc látinn Fyrrverandi einræðisherra Haítí, Jean Claude Duvalier, betur þekktur sem Baby Doc, lést í dag. Doc lést úr hjartaáfalli, 63 ára gamall. 4. október 2014 18:26 Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira
Ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Jean-Claude Duvalier, eða Baby Doc eins og hann var kallaður, fyrrverandi einræðisherra á Haiti sem lést í gær eftir hjartaslag átti yfir höfði sér ákæru fyrir glæpi gegn mannkyninu. 5. október 2014 11:55
Baby Doc látinn Fyrrverandi einræðisherra Haítí, Jean Claude Duvalier, betur þekktur sem Baby Doc, lést í dag. Doc lést úr hjartaáfalli, 63 ára gamall. 4. október 2014 18:26