2-0 forysta skilaði Keflavík ekki sigri gegn Val í Dalnum | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2014 13:47
Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla í kvöld en flautað verður síðast til leiks hjá Val og Keflavík sem mætast á gervigrasvellinum í Laugardal klukkan 20.30. Sá leikur verður í beinni útsendingu sem og leikur Víkings og Fram sem hefst klukkan 18.00 en eftir seinni leikinn eru Pepsi-mörkin svo á dagskrá. Sex klukkutíma fótboltaveisla á Stöð 2 Sport. Keflavík vann seinni leik liðanna í deildinni á síðasta tímabili en á undan því hafði Valur unnið Keflvíkinga, 4-0, í þremur leikjum í röð. Leikurinn í kvöld fer fram sem fyrr segir í Laugardalnum en þar mættust liðin síðast í úrvalsdeildinni árið 2007. Reyndar ekki á gervigrasinu heldur Laugardalsvellinum sjálfum þar sem Valur hafði heimavöll á meðan Vodafonevöllurinn var í byggingu. Þetta sumar varð Valur meistari eftir 18 ára bið en Keflavík var ríkjandi bikarmeistari og bæði lið virkilega vel mönnuð. Keflavík komst í 2-0 í leiknum með mörkum ÞórarinsBrynjars Kristjánssonar og Baldurs Sigurðssonar, núverandi fyrirliða KR, en það dugði skammt. Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson minnkaði muninn fyrir Val á 68. mínútu og Daníel Hjaltason tryggði Val annað stigið með fallegu skallamarki á 87. mínútu leiksins. Eitt stig til viðbótar í átt að Íslandsmeistaratitlinum. Aðeins tveir leikmenn af 36 sem voru á leikskýrslu eru enn í sama liði en það eru Keflvíkingarnir Einar Orri Einarsson og Magnús Þórir Matthíasson sem báðir byrjuðu á varamannabekknum. Fyrirliðar liðanna í leiknum, Sigurbörn Hreiðarsson og Jónas Guðni Sævarsson, eru nú þjálfari Hauka og fyrirliði KR. Í spilaranum hér að ofan má sjá mörkin úr þessum sjö ára gamla leik sem fram fór í Dalnum og er vonandi að leikurinn í kvöld verði jafnskemmtilegur.Leikskýrslan.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Manstu eftir þessari ótrúlegu endurkomu FH-inga? | Myndband FH og Breiðablik mætast í lokaleik fyrstu umferðar Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Þegar liðin mættust í Kópavogi fyrir fimm árum vann FH í ótrúlegum fótboltaleik. 5. maí 2014 13:15 Mest lesið Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Ballið búið hjá Chiefs og Mahomes meiddist á hné Sport „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Körfubolti „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Pogba dreymir um að eiga dýrasta úlfalda heims Sport Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Fótbolti Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Fótbolti Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Fótbolti Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina Sjá meira
Manstu eftir þessari ótrúlegu endurkomu FH-inga? | Myndband FH og Breiðablik mætast í lokaleik fyrstu umferðar Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Þegar liðin mættust í Kópavogi fyrir fimm árum vann FH í ótrúlegum fótboltaleik. 5. maí 2014 13:15