Vilja kanínu burt úr eyra Mandela Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 22. janúar 2014 22:32 Styttan er níu metra há og stendur í garði stjórnarráðs Suður-Afríku í höfuðborginni Pretoríu. vísir/getty
Yfirvöld í Suður-Afríku hafa skipað myndhöggvurum að fjarlægja kanínu úr hægra eyra bronsstyttu sem gerð var af Nelson Mandela, fyrrverandi forseta landsins, á dögunum. Myndhöggvararnir settu kanínuna í eyra styttunnar til þess að undirstrika það hversu nauman tíma þeir fengu til að ljúka verkinu, en orðið „haas“ merkir bæði kanínu og flýti á afríkönsku.Kanínan er vel falin inni í hægra eyra styttunnar.vísir/ap„Okkur finnst þetta óviðeigandi þar sem Nelson Mandela var aldrei með kanínu í eyranu,“ segir Mogomotsi Mogodiri, talsmaður lista- og menningarmálaráðuneytis Suður-Afríku í samtali við BBC. „Við viljum að fólk líti á styttuna sem vonartákn, en ekki eitthvað á borð við kanínu.“ Styttan er níu metra há og var afhjúpuð þann 16. desember, degi eftir að Mandela var borinn til grafar. Hún stendur í garði stjórnarráðs Suður-Afríku í höfuðborginni Pretoríu. Mogodiri segir myndhöggvarana hafa beðist afsökunar á uppátækinu og nú eru uppi umræður um hvenær hægt verður að fjarlægja kanínuna. „Yfirvöld vilja hana burt sem fyrst til þess að endurheimta virðuleika styttunnar,“ segir hann.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Fleiri fréttir Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Sjá meira