Pólitíkusar í ruslið Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. október 2014 07:00 Margir þeirra hafa undanfarið orðið fyrir dálítið meiri óþægindum en að blotna. fréttablaðið/AP
Í Úkraínu hefur undanfarið komist í tísku að setja stjórnmálamenn og embættismenn í ruslið. Og það bókstaflega, í sumum tilvikum að minnsta kosti. Sjáist þeir úti á götu mega þeir eiga von á því að múgur manns sópist að þeim og kasti hvers kyns rusli í þá, eða grípi þá jafnvel og hendi þeim ofan í ruslagáma. Myndböndum af slíku er dreift á samfélagsmiðlunum og hljóta góðar viðtökur. „Ruslatunnuhreinsanir“ er orðið, sem notað er um þetta, og er þá greinilega verið að vísa með harla óskammfeilnum hætti til hinna alræmdu „hreinsana“ Stalíns í Sovétríkjunum. Almenningur virðist að minnsta kosti búinn að fá sig fullsaddan af ráðamönnum. Eftir að Viktori Janúkóvitsj forseta var steypt af stóli síðasta vetur hafa umbætur í stjórnkerfinu verið afar hægar og ekkert lát virðist vera á spillingunni. „Fólk hefur ekki séð neinar raunverulegar breytingar. Fólk sér ekki neitt réttlæti,“ segir Maxim Latsyba, yfirmaður óháðrar rannsóknarstofnunar í stjórnmálafræði í Úkraínu. „Þegar samfélagsmiðlarnir eru skoðaðir þá má sjá alls kyns teikningar, ljósmyndir og brandara um þessi mál. Það sýnir að fólk er ánægt með þetta.“ Í lok næstu viku verða þingkosningar haldnar í Úkraínu, en stemningin í landinu virðist þess eðlis að þeir sem hæst hafa um fáránleika stjórnmálanna eiga mesta möguleika á kjöri. Einhver átök hafa haldið áfram í austurhluta landsins, þrátt fyrir samþykkt um vopnahlé í apríl. Þar á stjórnarherinn í höggi við uppreisnarmenn, sem vilja tengjast Rússlandi nánari böndum. Vopnahléið, þótt takmarkað sé, hefur engu að síður orðið til þess að draga athyglina að stjórninni í Kænugarði og sú athygli hefur ekki alltaf komið sér vel fyrir stjórnina. „Neytendur eru farnir að velta fyrir sér örlögum gjaldmiðilsins og horfum á verðbólgustökki og öll veltum við því fyrir okkur hvað það verður sem tekið verður frá Úkraínubúum á komandi vetri,“ skrifar dálkahöfundurinn Jegor Strúsjkín í vikuritið Kommentarí.
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Erlent Fleiri fréttir Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Sjá meira