Upplýstu hundrað ára gamalt morðmál Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. júní 2014 21:45 Domenico Palazzotto, maðurinn sem talaði af sér um morð frænda síns. VISIR/AP
Deild innan ítölsku lögreglunnar sem rannsakar fornfrægar mafíufjölskyldur í landinu handtók í dag 95 manns í tengslum við kúgun, fíkniefnasmygl og peningaþvætti.Reuters greinir frá rassíunni.Eftir tveggja ára rannsókn ákváðu lögreglan að láta til skarar skríða gegn meðlimum tveggja mafíuhópa í vesturhluta Palermo, stærstu borg Sikileyjar. Í samtali við þarlenda fjölmiðla segir Calegro Scibetta ofursti að aðgerð af þessari stærðargráðu hafii ekki farið fram í landinu svo árum skiptir. Tvær mafíufjölskyldur hafi verið „þurrkaðar út“. Ekki einungis hafi lögreglan haft hendur í hári stórtæks glæpahrings heldur hafi þau einnig varpað ljósi á hundrað ára gamalt morðmál sem hefur verið óupplýst til þessa. Árið 2013 hleraði ítalska lögreglan samtal tveggja ungra mafíósa sem lágu undir grun í tengslum við fyrrgreindar aðgerðir. Í máli þeirra kom fram að annar þeirra hefði fagnað því að 100 ár voru liðin frá dauða bandaríska lögreglumannsins Giuseppe Petrosino sem komið hafði til eyjunnar árið 1909 til að rannsaka forfeður mannsins. Petrosino hafði komið til Sikileyjar til að upplýsa lögregluyfirvöld heima fyrir um starfsemi mafíunnar, sem þá var betur þekkt sem „Svarta höndin“, en var ráðinn bani á torgi í Palermo skömmu eftir komu hans til borgarinnar „Við höfum verið glæpamenn í hundrað ár“, sagði annar mannanna á upptökunni. „Frændi föður míns, sem hét Paolo Palazzotto, var sá fyrsti til að myrða lögreglumann í Palermo. Hann hét Joe Petrosino og var bandarískur,“ bætti hann við. „Ungi mafíósinn lítur á glæpi forfeðra sinna sem heiðurstákn,“ lýsti Scibetta ofursti. Frans páfi fordæmdi skipulagði glæpastarfsemi landinu í ræðu sinni á laugardag og fór fram á að allir sem tengdust ítölsku mafíunni skildu útilokaðir úr söfnuðum kaþólsku kirkjunnar.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Sjá meira