Segir makrílveiðar Íslendinga óábyrgar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 24. mars 2014 17:13 vísir/esb
Írski Evrópuþingmaðurinn Pat „the Cop“ Gallagher hvetur framkvæmdastjórn ESB til þess að beita viðskiptaþvingunum gegn Íslandi og segir makrílveiðar þjóðarinnar óábyrgar. Icenews greinir frá. Gallagher er einn þeirra sem hefur verið fremstur í flokki í gagnrýni um framferði Íslendinga í makríldeilunni. Gallagher flutti ávarp sitt á Evrópuþinginu þar sem rætt var um nýtt samkomulag Evrópusambandsins, Norðmanna og Færeyinga um makrílveiðar næstu fimm árin sem Ísland er ekki aðili að. Hann sagðist vera ósáttur við vinnubrögð Mariu Damanki, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins. Hann taldi að hefði hún beitt refsiaðgerðum gegn Íslandi árið 2013 væri núverandi ástand öðruvísi. Þá krefst Gallagher þess að fundin verði langtímalausn til þess að tryggja að makrílstofninn haldist. Hann sagði Ísland og Færeyjar ábyrg fyrir ofveiði kolmunna á Norðaustur-Atlantshafsslóðum og segir það ástæðu fyrir hættu á hruni stofnsins verði ekkert gert í málunum. Hluti makrílafla Íslands fór úr einu prósenti árið 2006 upp í 23 prósent árið 2013. Á sama tíma hækkaði hluti makrílafla Færeyja úr 4,6 prósentum upp í 29,3 prósent. Íslenskir ráðamenn hafa sagt að Íslendingar hafi ekki neitað að undirrita samninginn heldur hafi samkomulagið strandað á Norðmönnum og hafi Evrópusambandið tekið undir það.Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, hefur sagt að mestu hafi skipt áhersla Íslendinga á að halda sig við ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknarráðsins, þ.e. að stunda sjálfbærar veiðar úr makrílstofninum á vísindalegum grunni.Fjallað verður um makrílveiðar í Stóru málunum á Stöð 2 klukkan 19.20 í kvöld í opinni dagskrá.
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent „Ísland á betra skilið“ Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Fleiri fréttir Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Boða hertar aðgerðir gegn afbrotaunglingum Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Herinn skakkar leikinn í Katmandú Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Hyggjast bólusetja kóalabirni gegn klamydíu Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Taka tolla Trumps í flýtimeðferð Standa fast á því að undirskriftin sé ekki Trumps Skipar strax nýjan forsætisráðherra Segja leiðtoga Hamas hafa lifað árásina af Kveikt í þinghúsinu og forsætisráðherrann hrökklast frá Leið yfir nýja ráðherrann á fyrsta fundi Á þriðja tug lífeyrisþega látinn eftir spengjuárás Rússa Ísraelar gera loftárásir á Katar Støre á vandasamt verk fyrir höndum eftir kosningasigur Svíar munu banna farsíma í grunnskólum frá næsta hausti Kosningaúrslit í Noregi: Störe fagnar sigri en Solberg mögulega á förum Mótmæla enn og þrír ráðherrar segja af sér Gefa grænt ljós á handtökur á grundvelli kynþáttar og málnotkunar Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Alþjóðakerfinu ekki viðbjargandi og þörf á aðlögun Segir danska kerfið þurfa að líta á Grænlendinga sem jafningja Opinbera bréf Trumps til Epsteins Vinstriblokkin með meirihluta í Noregi Þurfa að finna fimmta forsætisráðherrann á tveimur árum Sjá meira