Beats heyrnartól bönnuð á HM Randver Kári Randversson skrifar 20. júní 2014 11:16 Úrúgvæski framherjinn Edison Cavani mundar setur á sig heyrnartól á blaðamannafundi fyrir leik Úrugvæ og Englands á HM í gær. Vísir/AFP
Beats heyrnartólin eru í miklu uppáhaldi hjá mörgum af frægum knattspyrnumönnum heims á borð við Wayne Rooney, Luis Suarez og Neymar. Þeir mega þó ekki nota þau á opinberum viðburðum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu vegna styrktarsamnings keppinautarins Sony við FIFA. Frá þessu er greint á vef Reuters. Vegna vinsælda heyrnartólanna meðal knattspyrnumanna mátti gera ráð fyrir því að HM í knattspyrnu myndi virka sem risastór auglýsing fyrir Beats. Neymar hafði Beats heyrnartól um hálsinn þegar hann steig út úr liðsrútunni á leið á síðustu æfingu brasilíska landsliðsins fyrir mótið. Einnig sást Luis Suarez með heyrnartólin á æfingum fyrir mótið. Svo vill þó til að einn helsti keppinautur Beats, raftækjaframleiðandinn Sony, er opinber styrktaraðili FIFA, og kærir sig lítið um vinsældir Beats meðal skærustu stjarna knattpsyrnuheimsins. Vegna samnings milli FIFA og Sony mega þátttakendur á HM ekki sjást með Beats heyrnartól á leikvöngum keppninnar eða við opinbera fjölmiðlaviðburði. Beats virðist þó hafa yfirhöndina í þessari keppni um hylli knattspyrnumanna en heyrnartól sem Sony dreifði til keppenda á HM fyrir keppnina hafa ekki notið sömu vinsælda og Beats, og hafa fáir keppendur hingað til sést með þau. Markaðsfræðingar telja að þetta útspil Sony geti gagnast Beats geti enn frekar, en það virki ekki síður sem auglýsing ef knattspyrnustjörnur kjósa meðvitað að nota Beats heyrnartól frekar en Sony í sínum hvíldartíma meðan á HM stendur. Beats er þekkt fyrir að fara óhefðbundnar leiðir í markaðssetningu og nokkrum dögum áður en HM hófst sendi fyrirtækið frá sér 5 mínútna langt myndband þar sem knattspyrnumenn á borð við Neymar, Suarez, Mario Goetze, Robin van Persie og Javier Hernandez koma fram með heyrnartólin vinsælu. Myndbandið heitir The Game Before The GAme og hafa yfir 10 milljónir manns nú séð myndbandið á Youtube. Beats var upphaflega sett á laggirnar af bandaríska rapparanum Dr. Dre en tölvurisinn Apple keypti fyrirtækið í síðasta mánuði fyrir um 3 milljarða dollara.
Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Fleiri fréttir Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Sjá meira