Þúsundir koma saman vegna útfarar Tugce Atli Ísleifsson skrifar 3. desember 2014 13:58 Málið hefur vakið gríðarlega athygli í Þýskalandi vegna hetjudáðar Tugce. Vísir/AFP
Þúsundir manna komu saman í Þýskalandi i dag vegna jarðarfarar ungrar konu sem lést eftir að hafa komið upp á milli árásarmanns síns og tveggja kvenna sem hann var að áreita. Minningarathafnir hafa verið haldnar víða um Þýskaland síðustu daga, allt frá því að hin 23 ára Tugce Albayrak lést á föstudaginn.Í frétt BBC segir að þrjú þúsund manns hafi komið saman við í útför konunnar sem fram fór í Waechtersbach nærri Frankfurt fyrr í dag. Sendiherra Tyrklands var á meðal gesta en Tugce var af tyrkneskum uppruna. Árásin var gerð þann 15. nóvember í bænum Offenbach þar sem Tugce var veitt hnefahögg sem að lokum leiddi hana til dauða. Ákveðið var að slökkva á öndunarvél konunnar á föstudaginn, á 23 ára afmælisdegi hennar, en hún komst aldrei til meðvitundar eftir árásina. Árásin hefur vakið gríðarlega athygli í Þýskalandi, en Tugce kom konunum tveimur til bjargar eftir að hún heyrði óp á bílaplani fyrir utan skyndibitastað í Offenbach síðla nætur þann 15. nóvember. Þýska blaðið Bild birti myndskeið af árásinni úr öryggismyndavél fyrr í vikinni, en lögregla vonaðist til að fleiri vitni myndu gefa sig fram. Rúmlega 100 þúsund manns hafa skorað á Joachim Glauck Þýskalandsforseta að veita Tugce heiðursorðu. Gauck sagðist ætla að taka áskorunina til skoðunar, en í bréfi til fjölskyldu Tugce kveðst hann skelfingu lostinn vegna dauða hennar. Allir standi í þakkarskuld við hana. „Hún verður ávallt fyrirmynd fyrir okkur öll og öll þjóðin syrgir hana.“
Tengdar fréttir Þjóðverjar harmi slegnir vegna dauða ungrar konu Rúmlega 100 þúsund manns hafa skorað á Joachim Glauck Þýskalandsforseta að veita Tugce Albayrak sérstaka orðu að henni látinni. 1. desember 2014 16:14 Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra Sjá meira
Þjóðverjar harmi slegnir vegna dauða ungrar konu Rúmlega 100 þúsund manns hafa skorað á Joachim Glauck Þýskalandsforseta að veita Tugce Albayrak sérstaka orðu að henni látinni. 1. desember 2014 16:14