Dóttir stjórnarformannsins brjálaðist þegar hún fékk ekki hnetur á disk Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2014 16:27 Heather Cho er nú hætt sem varaformaður stjórnar Korean Air. Vísir/AFP
Dóttir stjórnarformanns Korean Air fyrirskipaði áhafnarmeðlimum vélar flugfélagsins til að hætta við flugtak og aka vélinni aftur í flugstöð þar sem hún vildi hneturnar sínar bornar fram á disk. Að því loknu lét hún vísa fyrstu freyjunni úr vélinni. Atvikið átti sér stað á JFK flugvellinum í New York á föstudaginn. Í frétt BBC kemur fram að Heather Cho, varaformaður stjórnar Korean Air og dóttir stjórnarformannsins, hafi reiðst mikið þegar henni var boðið makademíuhnetur í poka í stað þess að fá þær bornar fram á diski. Cho fyrirskipaði þá að vélinni skyldi ekið aftur að flugstöðinni til að hægt væri að vísa fyrstu freyjunni frá borði. Vélin var þá búin að aka 30 til 40 metra inn á flugbrautina. Korea Times greinir frá því að Cho hafi öskrað á flugfreyjurnar og skipað flugstjóranum að stöðva vélina. Cho hefur nú hætt störfum sem varaformaður stjórnar vegna atviksins og flugfélagið beðist velvirðingar.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira