Wayne Rooney hefur átt erfitt uppdráttar á þeim tveimur heimsmeistaramótum sem hann hefur tekið þátt í.
Rooney hefur m.a. mistekist að skora í þeim átta leikjum sem hann hefur spilað á HM og hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir að traðka á Ricardo Carvahlo þegar England féll úr leik fyrir Portúgal í fjórðungsúrslitum á HM í Þýskalandi 2006.
Alessandro Del Piero, fyrrum framherji Juventus og ítalska landsliðsins, hefur þó trú á Rooney.
"Wayne er frábær leikmaður," sagði Del Piero, sem lék síðast með Sydney FC í Ástralíu.
"Hann er í betra jafnvægi en áður og ég held að hann sé tilbúinn til að leiða enska landsliðið áfram."
England mætir Ítalíu í sínum fyrsta leik á HM í Brasilíu á laugardaginn. Del Piero segir að landa hans bíði erfitt verkefni.
"Þetta verður opinn leikur. England er með öðruvísi lið en þeir voru með fyrir 10-15 árum. Þeir geta skorað mörk úr ólíkum stöðum á vellinum eða gert óvænta hluti," sagði Del Piero, og bætti við:
"Ítalíu hefur jafnan gengið vel gegn Englandi. Ítölum gengur oftast vel í fyrsta leik á HM, en annar leikurinn hefur reynst þeim erfiður í gegnum tíðina.
"Þetta er sem sagan segir okkur, en fegurðin við fótboltann felst í því að allt getur breyst á örskotsstundu," sagði Del Piero að lokum en hann varð heimsmeistari með Ítalíu 2006.
England gerði markalaust jafntefli við Hondúras í gær í síðasta leik sínum fyrir HM.
Del Piero hefur trú á Rooney

Tengdar fréttir

Rooney: Scholes ekki þjálfað mig eða verið í kringum liðið
Scholes sagði Rooney vera búinn að toppa á sínum ferli og ætti mögulega að vera á bekknum á HM.

Redknapp: Rooney verður ekki settur á bekkinn
Knattspyrnustjóri QPR segir Wayne Rooney, Steven Gerrard og Joe Hart eiga að vera fyrstu menn á leikskýrslu enska landsliðsins.

Rooney á vinstri kantinum í kvöld
Roy Hodgson með tilraunastarfsemi gegn Ekvador í vináttulandsleik í Miami.

Markalaust jafntefli í Miami | Leikurinn hófst að nýju
England gerði markalaust jafntefli við Hondúras í sínum síðasta leik fyrir HM í Brasilíu.

Riðill Englands á HM sterkastur
Sé litið til stöðu liðanna á heimslista FIFA er D-riðillinn á HM í Brasilíu sá sterkasti.