Fótbolti

Markalaust jafntefli í Miami | Leikurinn hófst að nýju

Wayne Rooney í baráttu við Emilio Izaguirre í leiknum í kvöld.
Wayne Rooney í baráttu við Emilio Izaguirre í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
England gerði markalaust jafntefli við Hondúras í sínum síðasta leik fyrir HM í Brasilíu.

Leikurinn, sem fór fram á Sun Life vellinum í Miami í Flórída, gekk þó ekki stórslysalaust fyrir sig, en eins og greint var frá á Vísi fyrr í kvöld var leikurinn stöðvaður eftir 23 mínútur vegna þrumuveðurs. Englendingar höfðu verið sterkari aðilinn þessar fyrstu mínútur leiksins og nokkrum sinnum komist nálægt því að skora.

Um 40 mínútur liðu þangað við dómarinn Ricardo Salazar flautaði leikinn aftur á.

Hondúras lék manni færri síðustu 25 mínútur leiksins eftir að Brayan Beckeles fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot á Leighton Baines, en leikmenn Hondrúas buðu upp á nokkrar ansi skrautlegar tæklingar í leiknum.

England hefur leik á HM gegn Ítalíu 14. júní, en Hondrúas leikur sinn fyrsta leik gegn Frakklandi degi síðar.


Tengdar fréttir

Leik Englands og Hondúras hætt

Vináttulandsleikur Englands og Hondúras í Miami hefur verið flautaður af, allavega um stundar sakir, vegna þrumuveðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×