Telja sögur af draugaskipi og mannæturottum ósannar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 24. janúar 2014 23:38 Írsk yfirvöld hafa nú gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að sögurnar séu stórlega ýktar og líklegt sé að skipið sé sokkið. MYND/AFP
Undanfarna daga hafa verið sagðar fréttir og sögur af draugaskipinu Lyubov Orlova sem á að reka stjórnlaust um Atlandshafið og allra nýjustu sögur herma að nú það sigli í átt til Bretlands og um borð séu mannæturottur. Aðrar sögur segja að rotturnar éti aðeins hverja aðra. Írsk yfirvöld hafa nú gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að sögurnar séu stórlega ýktar og líklegt sé að skipið sé sokkið. Um er að ræða sama skip og Vísir sagði frá í fyrra en skipið mun hafa verið um 4200 tonn. Skipið var notað til skemmtisiglinga og var sérstaklega byggt til siglinga í ís og var skipið á sínum tíma notað í skemmtiferðir um norðurslóðir. Það hafði verið kyrrsett í höfn í Kanada í tvö ár vegna skulda en var á leið í togi til Dóminíska lýðveldisins en þangað hafði það verið selt í brotajárn. Í janúar í fyrra slitnuðu vírar á milli þess og dráttarskipsins þegar skipin voru rétt undan ströndum Nýfundnalands. Lyubov Orlova rak þá út í myrkrið. Enginn vildi bera ábyrgð á björgun þess. Yfirvöld í Kanada sögðu skipið sér óviðkomandi enda á alþjóðlegri siglingaleið þegar dráttarvírarnir slitnuðu. Yfirvöld í Írlandi sögðust taka afstöðu til málsins ef skipið ræki inn fyrir landhelgi þeirra. Landhelgisgæslan hér á landi fylgdist með reki skipsins ef það kynni að reka hingað til lands.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Fleiri fréttir Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Sjá meira