Lá á gólfinu í tvær klukkustundir og mátti ekki hreyfa sig Stefán Árni Pálsson skrifar 22. október 2014 22:46 Jean François Tessier og Myriam Pineault-Latreille samstarfskona hans. Einnig má sjá útsýnið út úr þinghúsinu. „
Við erum enn föst inni á skrifstofunni,“ segir Jean Francois Tessier, íslenskur ríkisborgari og aðstoðarmaður kanadíska þingmannsins Alexandrine Latendresse. Hann segir að enginn hafi fengið að yfirgefa kanadíska þinghúsið síðustu átta klukkustundir. Maður hóf skothríð við minnisvarða fyrir framan kanadíska þingið í Ottawa fyrr í morgun. Einn árásarmannanna var skotinn til bana fyrr í dag af lögreglu en hún telur að fleiri árásarmenn sé jafnvel enn í borginni. „Nú megum við ganga um bygginguna þar sem búið er að gera allar öryggisráðstafanir innanhús. Hér eru lögreglumenn allstaðar og verið er að rýma aðalbygginguna og austurálmuna. Þar eru allar skrifstofur þingmannanna.“ Hermaður sem særðist í skotárásinni við þinghúsið lést í kjölfarið. Lögreglan leitar nú um alla borg en ekki er víst hversu margir voru að verki. Jean Francois segir að lögreglan leiti nú að öðrum skotmanni um alla borg og eins og staðan er fær enginn að yfirgefa Ottawa-borg án þess að fara í gegnum öryggishlið. „Við fáum líklega að yfirgefa húsið á næstu klukkustundum,“ segir Francois sem hefur náð að halda ró sinni í allan dag. Það sama eigi ekki við um alla og greip um sig ákveðin skelfing fyrr í dag. Francois hefur fengið veður af því innanhús að grunur leiki á því að árásamaðurinn sé kanadískur íslamisti og hafi ekki verið einn að verki. Alexandrine Latendresse, þingkonan, sem Francois starfar fyrir, lá á gólfinu inni í þinghúsinu í tvær klukkustundir eftir að árásin átti sér stað. Hún mátti í raun ekkert hreyfa sig. Fyrr í þessum mánuði tilkynnti Kanadastjórn að hún hygðist taka þátt í loftárásum gegn hryðjuverkasamtökunum IS í Írak. Það er hins vegar ekkert sem staðfestir að skotárásin í dag tengist IS.
Tengdar fréttir Skotárás við kanadíska þinghúsið Sjónarvottar sáu árásarmanninn hlaupa inn í stjórnarbyggingu þar sem hann skaut fleiri skotum innandyra. 22. október 2014 14:54 Skotárásin í Ottawa: Íslendingi sagt að halda kyrru fyrir á skrifstofu í kanadíska þinghúsinu Íslenski ríkisborgarinn Jean Francois Tessier, aðstoðarmaður kanadíska þingmannsins Alexandrine Latendresse, er nú læstur inni á skrifstofu sinni í kanadíska þinghúsinu á meðan lögregla leitar fleiri árásarmanna í miðborg Ottawa. 22. október 2014 16:53 Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Khamenei sagður látinn Erlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Fleiri fréttir Khamenei sagður látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Sjá meira
Skotárás við kanadíska þinghúsið Sjónarvottar sáu árásarmanninn hlaupa inn í stjórnarbyggingu þar sem hann skaut fleiri skotum innandyra. 22. október 2014 14:54
Skotárásin í Ottawa: Íslendingi sagt að halda kyrru fyrir á skrifstofu í kanadíska þinghúsinu Íslenski ríkisborgarinn Jean Francois Tessier, aðstoðarmaður kanadíska þingmannsins Alexandrine Latendresse, er nú læstur inni á skrifstofu sinni í kanadíska þinghúsinu á meðan lögregla leitar fleiri árásarmanna í miðborg Ottawa. 22. október 2014 16:53