Skotárásin í Ottawa: Íslendingi sagt að halda kyrru fyrir á skrifstofu í kanadíska þinghúsinu Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2014 16:53 Jean François Tessier, Natalya Maslennikov og Myriam Pineault-Latreille eru nú læst inni á skrifstofu sinni í kanadíska þinghúsinu. Mynd/Jean François Tessier
Íslenski ríkisborgarinn Jean Francois Tessier, aðstoðarmaður kanadíska þingmannsins Alexandrine Latendresse, er nú fastur á skrifstofu sinni ásamt samstarfsfólki í kanadíska þinghúsinu á meðan lögregla leitar fleiri árásarmanna í miðborg Ottawa. Lögregla hefur fyrirskipað starfsmönnum þingsins að halda kyrru fyrir og hefur miðborg Ottawa verið girt af. Fjölmörgum skotum var hleypt af fyrir utan og inni í kanadíska þinghúsinu fyrr í dag. Lögregla hefur staðfest að árásarmaður hafi verið skotinn til bana, en fleiri er nú leitað. Jean Francois segir í samtali við Vísi að fjölmargir hermenn og lögreglumenn séu nú staðsettir fyrir utan þinghúsið. „Við höfum heyrt að herinn sé með leyniskyttur á þaki listasafnsins skammt frá. Það eru lögreglumenn alls staðar. Okkur er haldið á skrifstofum okkar. Öryggisverðir þingsins eru þeir einu með lykla svo við bíðum bara. Okkur var ráðlagt að standa ekki nálægt glugganum.“ Jean Francois starfsfólk ekki hafa hugmynd um hvenær það fái heimild til að yfirgefa skrifstofuna. Jean Francois segir að hermaður við minnisvarða skammt frá þinghúsinu hafa verið skotinn í bringuna í morgun. Árásarmaðurinn hafi svo ekið bíl að þinghúsinu, hlaupið inn og hafið skothríð. „Þingmenn voru á þingflokksfundum þegar árásin átti sér stað og hefur þeim verið komið í öruggt skjól. Engar upplýsingar hafa borist um að einhver þeirra hafi slasast, en þeim er nú haldið læstum inni í herbergjum með lögreglu og öryggisvörðum.“ Jean Francois segist hafa fengið það staðfest að maðurinn sem kom sér inn í aðalbyggingu þingsins hafi verið skotinn til bana af lögreglu. Hann segir lögreglu nú telja að árásarmennirnir séu tveir eða þrír í heildina. „Lögregla hefur einnig staðfest að skotum hafi síðar verið hleypt af skammt frá þinghúsinu, við Sparks-götu.“ Tessier segir að hermaður standi ávallt vörð við minnisvarðann skammt frá þinghúsinu og sá sem stóð þar í morgun hafi verið skotinn í bringuna. „Hann er ekki látinn,“ segir Jean Francios. Jean Francois Tessier er íslenskur ríkisborgari, fæddur í Quebec, sem bjó hér á landi í tíu ár. Hann varð aðstoðarmaður Latendresse haustið 2011.
Tengdar fréttir Skotárás við kanadíska þinghúsið Sjónarvottar sáu árásarmanninn hlaupa inn í stjórnarbyggingu þar sem hann skaut fleiri skotum innandyra. 22. október 2014 14:54 Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira
Skotárás við kanadíska þinghúsið Sjónarvottar sáu árásarmanninn hlaupa inn í stjórnarbyggingu þar sem hann skaut fleiri skotum innandyra. 22. október 2014 14:54