Innlent

Suðurlandsskjálftar ekki skemmtilegir

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Suðurlandsskjálftar leika Hvergerðinga grátt.
Suðurlandsskjálftar leika Hvergerðinga grátt. Fréttablaðið/Stefán
Nafn hátíðar sem haldin verður á Suðurlandi í mars eða apríl á næsta ári vekur ekki mikla hrifningu meðal bæjarfulltrúa í Hveragerði. Hátíðin er nefnd „Hinn árlegi Suðurlandsskjálfti“ og snýst um mat, sögu og menningu.

Bæjarráð setur fyrirvara við nafnið á viðburðinum sem virkar mjög neikvætt þar sem það vísar til erfiðrar upplifunar íbúa á svæðinu. Óeðlilegt er að tengja slíkan atburð við skemmtun,“ bókaði bæjarráð Hveragerðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×