Félagsmálaráðherra Danmerkur segir af sér Guðsteinn Bjarnason skrifar 30. janúar 2014 10:04 Annette Vilhelmsen (t.v.) ásamt Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra og skattamálaráðherra, Holger K. Nielsen.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn í Danmörku hefur sagt sig úr ríkisstjórninni. Formaður flokksins og félagsmálaráðherra, Annette Vilhelmsen, hefur einnig sagt af sér að því er danskir miðlar greina frá. Gríðarleg óánægja er með það innan flokksins að dönsk yfirvöld hafi ákveðið að selja hlut danska ríkisins í olíufélaginu Dong, til fjárfestingabankans Goldman og Sachs. „Ég hef í dag tekið ákvörðun um að ég býð mig ekki aftur fram til formanns flokksins og að Sósíalíski þjóðarflokkurinn dregur sig út úr stjórninni,” sagði hún á blaðamannafundi í morgun. „Þetta hefur verið dramatískur sólarhringur. Ég verð að viðurkenna að það var mikill ágreiningur í landsforystunni og þingflokknum. Mér tókst ekki að ná flokknum saman,” sagði hún. Ríkisstjórnin, sem er minnihlutastjórn, mun þó halda velli því Vilhelmsen sagði Sósíaliska þjóðarflokkinn ætla að verja hana falli. Eftir sitja í stjórninni Sósíaldemókratar og Róttæki vinstriflokkurinn, sem er flokkur frjálslyndra. Vilhelmsen viðurkenndi á blaðamannafundinum að flokkur hennar ætti nú í djúpstæðri kreppu, en segist þó ekki sjá eftir því hvernig hún tók á Dong-málinu: „Það hefur lítinn tilgang að sjá eftir nokkru í pólitík. Það geri ég heldur ekki nú.” Boðað verður til landsþings Sósíalíska vinstriflokksins, þar sem nýr formaður verður kosinn.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Sjá meira