Enski boltinn

Aron átti þátt í báðum mörkum Cardiff

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron í baráttunni í dag.
Aron í baráttunni í dag. Vísir/Getty
Cardiff vann Nottingham Forest í ensku B-deildinni í fótbolta í dag, en Aron Einar Gunnarsson spilaði afar vel í liði Cardiff. Hann spilaði fyrstu 66. mínútur leiksins.

Landsliðsfyrirliðinn lagði upp fyrsta mark Cardiff þegar hann lagði boltann á United-hetjuna Federico Macheda sem skoraði á 22. mínútu.

Aron Einar hefur ekkert tekið löng innköst síðan hann fór úr axlarlið í landsleik gegn Slóveníu á síðasta ári. Hann tók hins vegar upp á því á ný í dag og það skilaði marki, en Peter Whittingham tvöfaldaði forystuna stuttu eftir fyrra markið.

Britt Assombalonga minnkaði muninn fyrir Forest mínútu fyrir leiksok, en nær komust þeir ekki. Cardiff fór með sigrinum upp í ellefta sæti deildarinar, en Nottingham Forest er í öðru sætinu. Þetta var fyrsti tapleikur þeirra á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×