Enski boltinn

Áfram mallar Chelsea-vélin | Sjáðu mörkin

Chelsea vann sjöunda sigur í átta leikjum, en liðið vann 2-1 sigur á Crystal Palace á Selhurst Park í dag.

Oscar kom Chelsea yfir með laglegu aukaspyrnumarki á sjöttu mínútu leiksins. Cesar Azpilicueta fékk svo að líta beint rautt spjald á 40. mínútu fyrir tæklingu.

Annað rautt spjald kom á 43. mínútu þegar Damien Delaney fékk sitt annað gula spjald hjá Palace og varsendur í sturtu. Cesc Fabregas skoraði annað mark Chelsea á 51. mínútu. Fraizer Campbell náði að klóra í bakkann fyrir Palace í uppbótartíma, en nær komust þeir ekki.

Chelsea með 22 stig á toppnum, fimm stigum meira en City sem er í öðru sæti. Palace er hins vegar í sextánda sæti með átta stig, þremur stigum frá fallsæti.

Crystal Palace - Chelsea 1-2

0-1 Oscar (6.), 0-2 Cesc Fabregas (51.), 1-2 Fraizer Campbell (90.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×