Dramatík í lokin hjá Kára og félögum - sigur hjá Cardiff Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2014 21:33 Aron Einar Gunnarsson í leiknum á móti Ipswich í kvöld. Vísir/Getty
Kári Árnason og félagar í Rotherham United gerðu 3-3 jafntefli við Fulham í ensku b-deildinni í kvöld en Fulham jafnaði metin á lokamínútu leiksins. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff unnu á sama tíma 3-1 heimasigur á Ipswich Town. Kári Árnason spilaði allan leikinn fyrir Rotherham United sem var nálægt sigri á Fulham. Dan Burn tryggði Fulham 3-3 jafntefli Þegar hann skoraði á 90. mínútu leiksins. Rotherham United átti möguleika á því að vinna sinn þriðja sigur í síðustu fjórum leikjum. Rotherham United komst þrisvar yfir í leiknum þar á meðal með sjálfsmarki Búlgarans Nikolay Bodurov á 86. mínútu leiksins. Alex Revell og Jonson Clarke-Harris höfðu áður komið Rotherham United í bæði 1-0 og 2-1. Rotherham United er nú í 14. sæti. Aron Einar Gunnarsson spilaði allan tímann á miðjunni þegar Cardiff City vann 3-1 heimasigur á en velska liðið hefur nú unnið tvo fyrstu leikina undir stjórn nýja stjórans Russell Slade. Daryl Murphy kom Ipswich í 1-0 á 29. mínútu en mörk frá Peter Whittingham, Federico Macheda og Adam Le Fondre tryggðu Cardiff sigurinn og þar með 10. sætið í deildinni. Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með Charlton vegna meiðsla þegar liðið vann 2-1 heimsigur á Bolton en Charlton-liðið komst í 2-0 með mörkum frá George Tucudean og Johnnie Jackson.
Enski boltinn Mest lesið Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Fótbolti Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Fleiri fréttir Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Sjá meira