Uppvötvuðu nýja tegund ferskvatnshöfrunga Brjánn Jónasson skrifar 23. janúar 2014 11:28 Ný tegund ferskvatnshöfrunga hefur hlotið heitið Inia araguaiaensis, eftir Araguaia-fljótinu þar sem þeir finnast. Mynd/Nicole Dutra
Rannsóknir á ferskvatnshöfrungum í Araguaia-fljótinu í Amazon-frumskóginum í Brasilíu hafa leitt í ljós að þeir tilheyra nýrri tegund. Nærri ein öld er liðin frá því ný tegund höfrunga uppgvötvaðist síðast, árið 1918. Höfrungarnir tilheyra fimmtu tegund fersksvatnshöfrunga sem þekkt er í heiminum, samkvæmt umfjöllun BBC. Þrjár tegundir eru í mikilli útrýmingarhættu. Talið er að um 1.000 höfrungar af þessari nýju tegund séu til í dag. Lengi var talið að þeir tilheyrðu annarri tegund höfrunga, en rannsóknir á erfðaefni höfrunganna hafa leitt annað í ljós. Nú er talið að þeir hafi skilist frá annarri tegund ferskvatnshöfrunga sem lifa í fljótum Amazon-frumskógarins fyrir rúmum tveimur milljónum ára. Sú tegund er kennd við frumskóginn, og eru einstaklingar af þeirri tegund kallaðir Amazon-höfrungar, þó latneska heiti þeirra sé Inia geoffrensis.Hér má sjá dreifingu þriggja tegunda ferskvatnshöfrunga í fljótum Amazon-frumskógarins. Algengastir eru Amazon-höfrungarnir (Inia g. geoffrensis). Araguaia-höfrungarnir lifa í fljótum á bláa svæðinu á kortinu.Mynd/Plos One„Þeir eru mjög líkir hinum höfrungunum,“ segir Dr. Tomas Hrbek, einn höfunda vísindagreinar þar sem fjallað er um þessa nýju tegund. Greinin birtist í vísindaritinu Plos One. Í greininni segir að rannsaka þurfi betur tenginguna milli þessarar nýju tegundar og Amazon-ferskvatnshöfrungunum.
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira