Fjölskylda Mikaeels miður sín Hrund Þórsdóttir skrifar 19. janúar 2014 12:10
Móðir litla drengsins, sem hvarf frá heimili sínu í Edinborg á miðvikudaginn og fannst látinn í fyrrakvöld, hefur verið ákærð fyrir aðild að láti drengsins. „Við erum niðurbrotin,“ segir systir hennar og eigandi hússins þar sem líkið fannst.Mikaeel Kular var þriggja ára gamall. Fjölskylda hans tilkynnti á fimmtudagsmorguninn að hann væri horfinn og hófst þegar víðtæk leit að honum í Fife héraði í Skotlandi, með þátttöku yfir 200 sjálfboðaliða auk lögreglu og strandgæslu. Í fyrstu var ekki vitað hvort hann hefði farið eitthvert af sjálfsdáðum eða hvort saknæmt athæfi hefði átt sér stað, en móðir hans hélt því fram að hún hefði komið drengnum í háttinn á miðvikudagskvöldið en síðan hefði hann ekki verið í rúmi sínu morguninn eftir. Lík hans fannst svo á föstudagskvöldið á lóð við hús í bænum Kirkcaldy, skammt frá Edinborg, en húsið er í eigu móðursystur hans. Móðirin, Rosdeep Kular, er 33 ára og móðir fimm barna undir tíu ára aldri. Áður en hún flutti til Edinborgar bjó hún í húsi systur sinnar með börnum sínum og er haft eftir sjónarvottum að fyrr í vikunni hafi hún verið verið þar ein á ferli. Skömmu eftir líkfundinn var hún handtekin og var hún yfirheyrð í allan gærdag. Jafnframt var gerð ítarleg rannsókn á vettvangi. Móðirin hefur nú verið ákærð, grunuð um aðild að láti drengsins og verður hún leidd fyrir dómara í Edinborg á morgun.„Við höfum misst hann og erum niðurbrotin,“ sagði móðursystirin í viðtali við Daily Mail. Hún hafði ekki rætt við systur sína en hin börnin fjögur, tvær systur og tveir bræður Mikaeels litla, þar á meðal tvíburi hans, dvelja nú hjá þessari frænku sinni. Í Daily Mail kemur jafnframt fram að Mikaeel hafði ekki sést á leikskóla sínum í næstum heilan mánuð vegna veikinda. Mikil sorg ríkir í Fife héraði í Skotlandi vegna málsins og mættu mörg hundruð manns á minningarathöfn um Mikaeel litla í gærkvöldi. Margir hafa líka lagt leið sína að heimili hans og húsinu þar sem hann fannst látinn og skilið þar eftir blóm, bangsa og logandi kerti. Lögreglu hafa borist yfir 500 símtöl frá almennum borgurum sem telja sig hafa upplýsingar um málið.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Erlent „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Erlent Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Innlent Fleiri fréttir Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Sjá meira