30 prósent dauðsfalla af völdum krabbameins tengjast reykingum Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 11. febrúar 2014 10:52 VÍSIR/GVA
Ungar konur sem reykja gætu verið í meiri hættu að fá brjóstakrabbamein samkvæmt nýjum rannsóknum frá rannsóknarhópi í Seattle í Bandaríkjunum. Niðurstaða rannsóknarinnar er að konur sem reykt hafi í að minnsta kosti 10 ár og eru á aldrinum 20 til 44 ára séu í meiri hættu á að fá brjóstakrabbamein en aðrar konur. Talsvert hefur verið fjallað um málið í erlendum fjölmiðlum í dag og í gær. Helgi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í krabbameinslækningum á Landspítalanum, segir að rannsóknin hafi mjög veika sönnunarbyrði ef svo megi að orði komast. Um sé að ræða svokallaða faraldsfræðilega rannsókn þar sem tilfellin eru borin saman við viðmið og reynslan sýni að slíkar rannsóknir séu mjög veik vísbending í besta falli. Eins og fram komi í fréttunum af málinu hafi rannsóknin vakið meiri athygli hjá leikmönnum en læknum og áhugamönnum. Rannsóknin sé frekar ákall til vísindasamfélagsins að skoða betur og velta því fyrir sér hvort ungar konur sem reykt hafi að staðaldri séu í meiri hættu en aðrar á því að fá brjóstakrabbamein. Helgi segir að hingað til hafi ekki verið sýnt að reykingar hafi áhrif á brjóstakrabbamein en reykingar hafi þó áhrif á fullt af öðrum krabbameinum. Meltingarfærin og þvagblaðran eru í sérstakri hættu en þar kemst tóbakið í snertingu við slímhimnuna. Lungnakrabbamein er algengast krabbameina meðal reykingafólks, þar á eftir krabbamein í þvagblöðru og síðan krabbamein í meltingarveginum eins og hann leggur sig, þar með talið brisi. „Enginn áhættuþáttur í umhverfinu hefur nálægt því eins krabbameinsvaldandi áhrif og reykingar,“ segir Helgi en um 30 prósent dauðsfalla af völdum krabbameins tengjast reykingum beint.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Fleiri fréttir Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Sjá meira