Einkunnir hækkuðu þegar lexíunum var sleppt Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. júlí 2014 07:00 Nemendum leið betur í skólanum þegar þeir sluppu við lexíurnar. NordicPhotos/Getty
Þegar nemendurnir í grunnskólanum Norrevångsskolan í Karlshamn í Svíþjóð sluppu við heimanám hækkuðu einkunnir þeirra umtalsvert, að því er sænskir fjölmiðlar greina frá. Skólastjórinn gerði í fyrra tilraun meðal nemenda í 7. til 9. bekk sem gekk út á að sleppa alveg lexíum. Nemendum var boðinn morgunverður í skólanum og þeir höfðu möguleika á að dvelja í skólanum eftir að kennslu lauk til þess að fá sérstaka aðstoð við námið eða stunda íþróttir. Haft er eftir skólastjóranum að margt hafi ekki verið sem skyldi, fjarvistir hafi verið miklar, árangur lélegur og færri kosið að læra tungumál. Menn hafi komist að því að ekki væri hægt að halda áfram að feta ranga braut. Breytingar hafi verið nauðsynlegar. Skólastjórinn, Patrik Johnsson, segir að nemendur læri tíu sinnum meira á frjálsum námstíma heldur en þegar þeir fá lexíur heim. Hann segir einkunnir aldrei hafa verið hærri. Það sem gleður skólastjórann mest er að nemendur hafa á orði að þeim líði betur í skólanum og að þeir finni fyrir meira öryggi. Auk þess sé minna skemmt í skólanum. Það er mat skólastjórans að þegar heimanámi sé sleppt aukist kröfurnar á kennara um árangursríkari kennslu. Þess vegna hafi árangurinn af breytingunum orðið svona góður. Hann bendir meðal annars á að rannsóknir hafi leitt í ljós að heimanám sé helsta orsök árekstra á heimilinu auk þess sem mikilvægt sé að skilja á milli vinnu og frítíma. Nemendur hafi orðið miklu einbeittari í skólanum. Kennslutíma kennara og fyrirkomulagi kennslu var breytt en eini viðbótarkostnaður skólans var vegna morgunmatarins, að sögn skólastjórans.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira