Vændiskona ákærð fyrir að drepa yfirmann hjá Google með heróíni Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. júlí 2014 15:09 Forrest Timothy Hayes og fylgdardaman Alix Catherine Tichleman.
Kona, sem lögreglan segir vera fylgdardömu, hefur verið handtekin vegna gruns um að hún hafi sprautað miklu magni af heróíni í yfirmann hjá tæknifyrirtækinu Google með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar. Maðurinn, Forrest Timothy Hayes, á að hafa átt í löngu viðskiptasambandi við hina 26 ára gömlu Alix Catherine Tichleman áður en að hann fannst látinn um borð í snekkju sinni í Santa Cruz þann 23. nóvember síðastliðinn. Hayes kom víða við í starfi sínu fyrir tæknirisann en hann var meðal annars einn af aðalsprautunum á bak við stafrænu Google-gleraugun. Rannsóknarlögreglumenn segja að öryggismyndavélar um borð í bátnum sýni svo ekki verði um villst að Tichleman hafi sprautað Hayes með heróini, skömmu áður en hún labbaði út í nóttina eins og ekkert hefði í skorist. „Í stað þess að reyna að koma manninum til bjargar eða hringja á neyðarlínuna ákvað ungfrú Tichleman heldur að taka saman föggur sínar, þar með talið heróínið og nálar,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. Á hún að hafa stigið margoft yfir lík mannsins meðan á tiltektinni stóð, til að mynda til að klára rauðvínsglasið sitt. Lögreglan segir að hún hafi því næst dregið gardínurnar fyrir svo að enginn sæi inn í bátinn og lík mannsins á gólfinu. Tichleman mætti fyrir rétt í Santa Cruz í gær en hún hefur verið ákærð fyrir morð, að veita annarri manneskju heróín, fyrir að valda manninum líkamstjóni, eignarhald á fíkniefnum og vændissölu. Konan hefur montað sig af því á heimasíðu sinni af hafa átt í viðskiptum við meira en 200 manns og að hún rukki oft mörg þúsund dali fyrir kynnin.
Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Fleiri fréttir Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Sjá meira