Innbrotsþjófur náðist eftir að hafa skráð sig inn á Facebook Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. júní 2014 11:07 Nicholas Wig náðist eftir að hafa skráð sig á Facebook.
Innbrotsþjófur í Dakotasýslu í Minnesota í Bandaríkjunum kom upp um sig með því að skrá sig inn á Facebook í tölvu á heimili sem hann braust inn í. Enginn var heima þegar hann braust inn og safnaði hann heimilismunum í mestu makindum og skellti sér á Facebook í leiðinni. Hann gleymdi að skrá sig útaf vefnum. Þegar James Wood, sem býr í húsinu, kom heim tók hann strax eftir því að einhver hafði brotist inn. „Þegar ég kom heim úr vinnunni sá ég tölvuskjáinn á hliðinni og tók eftir því að kreditkortum og peningum hafði verið stolið, ásamt ávísanahefti og úri. Ég fór alveg í kerfi,“ rifjar hann upp. Wood hafði samband við lögreglu samstundis. Hann lagaði síðan tölvuskjáinn og kveikti á tölvunni. Þá tók hann eftir að þjófurinn, sem heitir Nicholas Wig, hafði gleymt að skrá sig útaf Facebook. Wood deildi myndum af Wig og sagði fólki að vara sig á honum, því hann væri þjófur. Wig var ekki sáttur með myndbirtinguna og hafði samband við Wood, sem sannfærði hann um að þeir ættu að hittast, því þjófurinn hafði gleymt fötum heima hjá Wood. Og eins ótrúlega og það hljómar þá samþykkti þjófurinn Wig að hitta Wood. „Þetta er einn af heimskustu þjófum heims,“ sagði Wood við fréttastofur í Bandaríkjunum. Wood hafði samband við lögregluna og sagði henni frá því hvar og hvenær þeir ætluðu að hittast. Þar var Wig svo handtekinn. Saksóknari Dakotasýslu, James Backstrom, segir þetta vera alveg ótrúlegt mál. „Þjófurinn kemst líklega í spjallþætti, því hann er líklega ekki sá skarpasti,“ segir hann. Backstrom segir það ljóst að Wig hefði líklega aldrei náðst ef hann hefði ekki skráð sig inn á Facebook á vettvangi glæpsins. Wig á að baki langa brotasögu og gæti fengið allt að tíu ára fangelsi og nokkurra milljóna króna sekt fyrir glæpinn.
Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Ég var skelfingu lostinn“ Innlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Innlent Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Erlent Fleiri fréttir Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Fjórir dánir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Sjá meira