Mæla koltvísýring í andrúmslofti jarðar Freyr Bjarnason skrifar 21. júní 2014 07:00
Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, ætlar 1. júlí að skjóta á loft gervihnetti sem mælir magn koltvísýrings í andrúmsloftinu. Hann nefnist Orbiting Carbon Observatory-2, eða OCO-2, og verður þetta önnur tilraun NASA til að skjóta á loft gervihnetti sem mælir koltvísýring. Sú fyrsta var gerð árið 2009 en þá mistókst hnettinum að komast á sporbaug um jörðu. OCO-2 mun mæla magn koltvísýrings af mikilli nákvæmni og meðal annars eftir árstíðum. Koltvísýringur er ein þeirra gróðurhúsalofttegunda sem koma í veg fyrir að hiti komist í burtu frá jörðinni. Margir vísindamenn telja að mikil losun gróðurhúsalofttegunda verði til þess að hitastig jarðar hækki. Frá því að iðnvæðingin hófst hefur losun koltvísýrings út í andrúmsloftið aukist mikið og samkvæmt NASA hefur hann ekki verið meiri í að minnsta kosti 800 þúsund ár. Mælitæki á jörðu niðri gefa til kynna að hann hafi aukist um tæp tuttugu prósent á síðustu fimmtíu árum. Heimshöfin, plöntur og jarðvegur drekka í sig mestan koltvísýring og draga þannig úr magni hans í andrúmsloftinu. Aftur á móti er ekki vitað hversu mikið magnið er eftir svæðum jarðar og ekki heldur hvort magnið sem höfin, plöntur og jarðvegur drekka í sig hafi minnkað eftir því sem meiri koltvísýringi hefur verið dælt út í andrúmsloftið. Bruni á jarðefnaeldsneyti og aðrar aðgerðir mannfólksins valda því að 40 milljörðum tonna af koltvísýringi er dælt út í andrúmsloftið á hverju ári, sem veldur því að þessi gróðurhúsalofttegund hefur safnast upp á löngum tíma.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Sjá meira