Lokuðu fíkniefnamarkaði á netinu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 6. nóvember 2014 20:10 Silk Road var stærsti svarti markaður internetsins. Silk Road 2 opnaði þegar honum var lokað á síðasta ári.
Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu lokuðu í dag Silk Road 2, leynilegum markaði á netinu þar sem meðal annars var hægt að kaupa fíkniefni og vopn. Á síðasta ári lokuðu sömu aðilar samskonar síðu sem hét Silk Road. Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur einnig handtekið mann sem talinn er hafa haft umsjón með síðunni. Fjallað er um málið á tæknisíðunni The Verge. Maðurinn, sem heitir Blake Benthall, er 26 ára gamall. Hann hefur verið leiddur fyrir dómara vestanhafs vegna ákæru fyrir að hjálpa til við dreifingu fíkniefna, að fremja tölvugæpi, dreifingu á fölsuðum skilríkjum og peningaþvætti. Samkvæmt FBI voru notendur Silk Road 2 um það bil 150 þúsund talsins og nam velta á síðunni um átta milljónum dollara, jafnvirði um 991 milljónar króna, á mánuði. FBI segir að um þrettán þúsund auglýsingar um fíkniefni hafi verið á síðunni í lok októbermánaðar.Þessi skilaboð blasa við notendum Silk Road 2.Yfirvöld hafa verið meðvituð um Silk Road 2 síðan henni var lokað nákvæmlega ári eftir að hún fór fyrst í loftið. Lögreglan náði stjórn á síðunni eftir að útsendari heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna ávann sér traust Benthall og fékk hann til að afhenda sér fyrir stjórnunaraðgangi að henni. Síðan er aðeins ein af mörgum sem spruttu upp í kjölfar þess að yfirvöld lokuðu hinum alræmda Silk Road markaði árið 2013. Þá var maður að nafni Ross Ulbricht handtekinn og sakaður um að hafa haft umsjón með síðunni sem velti umtalsverðum fjármunum vegna sölu fíkniefna, falsaðra skilríkja, vopna og annars varnings. Íslensk lögregluyfirvöld tóku þátt í að loka þeirri síðu en hún var hýst í gagnaveri Advania í Hafnarfirði.
Mest lesið Davíð Oddsson er látinn Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Erlent Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Erlent Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Veður Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Fleiri fréttir Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Sjá meira