Erlent

Fangauppreisn í Brasilíu

Að minnsta kosti tveir fangaverðir eru gíslar fanganna.
Að minnsta kosti tveir fangaverðir eru gíslar fanganna. Vísir/AFP
Til uppþots kom á meðal fanga í brasílísku borginni Cascavel í gær. Fjórir hið minnsta eru látnir og fjölmargir slasaðir. Að minnsta kosti sjöhundruð fangar taka þátt í uppreisninni en þeir segjast vera að mótmæla slæmum aðbúnaði og harðræði af hendi fangavarða.

Að minnsta kosti tveir fangaverðir eru nú gíslar fanganna og eru samningaviðræður nú í gangi um lausn á málinu. Brasilía er í fjórða sæti á meðal landa heimsins þegar kemur að fjölda fanga miðað við höfðatölu.

Fimmhundruð þúsund manns eru í fangelsum í landinu en fangelsin eru aðeins byggð til að halda þrjúhundruð þúsund föngum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×