Höfuðborg Líbíu á valdi íslamista Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2014 11:22 Íslamistar náðu flugellinum í höfuðborginni Trípolí á sitt vald um helgina. Vísir/AFP
Trípolí, höfuðborg Líbíu, er nú á valdi íslamista eftir að þeir náðu tökum á flugvelli borgarinnar. Forseti líbíska þingsins hefur kallað þingið saman til neyðarfundar til að „bjarga landinu“. Dögun, bandalag íslamista og uppreisnarmanna frá svæðinu í kringum borgina Misrata, hafa átt í átökum við hersveitir stjórnarhersins síðustu vikur og virðast hafa haft betur. Borgarastyrjöld vofir nú yfir í landinu eftir að liðsmenn Dögunar náðu flugvellinum í Trípolí á sitt vald um helgina og komu á eigin ríkisstjórn. Að sögn breska blaðsins Guardian þýðir það að hópurinn hafi í raun náð tökum á höfuðborginni Trípolí. Í gær birtust myndir af flugvallarbyggingum í ljósum logum, sem bendir til að íslamistar hyggist eyðileggja flugvöllinn frekar en halda honum. Átök hafa staðið yfir í landinu allt frá kosningunum í júlí þar sem flokkar íslamista biðu lægri hlut. Hafa íslamistar sakað hið nýkjörna þing um að vera samansett af stuðningsmönnum fyrrum einræðisherrans Muammar Gaddafi sem lést í borgarastyrjöldinni árið 2011. Hið formlega þing Líbíu, sem er með aðsetur í borginni Tobruk í austurhluta landsins, hefur skilgreint Dögun sem hryðjuverkasamtök og lýst yfir stríði gegn þeim. Í grein Guardian segir að framvinda síðustu daga hafi leitt til að tvö þing starfi nú í Líbíu, annað í Tobruk og hitt í Trípolí.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira