Stórslasaði dómara sem ætlaði að gefa honum rautt spjald Kjartan Atli Kjartansson skrifar 1. júlí 2014 12:51 Baseel Saad gæti átt yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm.
Knattspyrnudómari frá Detroit í Bandaríkjunum liggur þungt haldinn á spítala eftir að leikmaður, sem var ósáttur með dóm, kýldi hann. Dómarinn ætlaði að sýna leikmanninum, sem heitir Baseel Saad, rauða spjaldið í leik sem var hluti af deildarkeppni fyrir þrjátíu ára og eldri og fór fram á sunnudaginn. Baseel Saad flúði vettvang, en lögreglan í Michigan-fylki náði honum skömmu seinna og hefur hann verið ákærður fyrir hættulega líkamsárás og gæti átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi. „Þegar dómarinn fór í vasann og ætlaði að ná í rauða spjaldið kýldi Saad hann,“ útskýrði Joe Consenza fyrir bandarískum fjölmiðlum. Consenza var andstæðingur Saad í leiknum. „Hann hitti hann í kjálkann og hálsinn, einhvernveginn. Dómarinn rotaðist gjörsamlega. Féll bara rotaður aftur fyrir sig. Þetta er eitthvað það hryllilegasta sem ég hef séð,“ bætti Consenza við. Þegar Saad flúði tóku andstæðingar hans myndir af bílnum sem hann var í. Vinur Saad, sem var undir stýri, var einnig handtekinn fyrir að aðstoða mann við að flýja af vettvangi. Liði Saad hefur verið vikið úr keppni. Um áhugamannadeild er að ræða fyrir þrjátíu ára og eldri. Örfáir áhorfendur voru á leiknum. Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt um málið.
Mest lesið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Átta börn látin eftir skotárás Erlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Fleiri fréttir Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Sjá meira